139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 18 — 18. mál.
Frumvarp til laga
um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja.
Flm.: Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadóttir, Baldvin Jónsson,
Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson,
Helgi Hjörvar, Höskuldur Þórhallsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Ólafur Þór Gunnarsson,
Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Þráinn Bertelsson.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Í heiti laganna, og annars staðar þar sem annað kemur ekki fram, merkir „Ísland“ íslenskt land, landhelgi, lofthelgi, efnahagslögsögu og landgrunn og allt íslenskt yfirráðasvæði samkvæmt lögum, þjóðarétti og ýtrustu fullveldisréttindum í og á landi, á og yfir hafsbotni, í sjó og ofan sjávar og í lofti.
Hið „friðlýsta svæði“ merkir í lögum þessum allt íslenskt yfirráðasvæði sem lýst er í þessari grein þar sem geymsla, framleiðsla, tilraunir og hvers kyns meðhöndlun eða flutningur kjarnorkuvopna er bannaður, sbr. þó ákvæði 12. gr.
4. gr.
1. búa til kjarnorkuvopn af neinu tagi, afla sér slíks vopns eða hafa það undir höndum;
2. veita aðstoð, hjálp eða atbeina til þess að nokkur búi til, afli sér eða hafi undir höndum kjarnorkuvopn af neinu tagi.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
Losun kjarnorkuúrgangs eða annarra geislavirkra efna hvort sem þau teljast hágeislavirk eða lággeislavirk, þar með taldir geislavirkir vökvar, er með öllu óheimil innan hins friðlýsta svæðis.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er nú lagt fram í tíunda sinn. Síðast var frumvarp þetta lagt fram á 136. löggjafarþingi og var því þá vísað til utanríkismálanefndar sem sendi frumvarpið til umsagnar. Nefndinni bárust nokkrar umsagnir en málið var þó ekki afgreitt frá nefndinni.
Í gegnum tíðina hefur frumvarpið notið stuðnings þingmanna allra hinna rótgrónu flokka nema Sjálfstæðisflokksins og var engin undantekning á því á 136. löggjafarþingi þegar þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Samfylkingarinnar, Frjálslynda flokksins og Framsóknarflokksins fluttu málið á þingi. Flutningsmenn voru þá Árni Þór Sigurðsson, Steingrímur J. Sigfússon, Ásta R. Jóhannesdóttir, Ellert B. Schram, Guðjón A. Kristjánsson, Guðni Ágústsson, Höskuldur Þórhallsson, Kristinn H. Gunnarsson, Katrín Jakobsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Álfheiður Ingadóttir og Helgi Hjörvar.
Í samstarfsyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnarflokka segir m.a. í umfjöllun um utanríkismál:
„Málefni norðurslóða verða forgangsmál og viðfangsefni svæðisins þarf að leysa á grundvelli gildandi alþjóðasamninga, alþjóðastofnana og svæðasamstarfs. Áhersla verði lögð á að vernda viðkvæmt lífríki svæðisins, sjálfbæra nýtingu auðlinda og aukið samstarf á Norðurlöndum um viðbúnað gegn umhverfisvá og slysum á norðurhöfum, leit og björgun.
Áfram verði unnið að mótun öryggisstefnu Íslands á grundvelli eigin hættumats í nánu samstarfi við nágrannaþjóðir og önnur bandalagsríki. Varnarmálastofnun verði endurskoðuð, sem og loftrýmisgæsla, í samræmi við áherslur í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland. Unnið verði á grundvelli víðtæks öryggishugtaks og áhersla lögð á sameiginlegt alþjóðlegt öryggi.
Ísland verður friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og íslensk stjórnvöld munu beita sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi.“
Á síðasta löggjafarþingi voru samþykkt lög um niðurlagningu Varnarmálastofnunar. Þá hafa málefni Norðurslóða fengið aukið vægi í umræðum og stefnuyfirlýsingum stjórnvalda eins og glöggt kemur fram í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál sl. vor (þskj. 1070 – 611. mál). Full ástæða er til að vekja athygli á mikilvægi friðlýsingar Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og er frumvarp þetta nú endurflutt enn einu sinni í því augnamiði.
Á umliðnum árum hafa æ fleiri kallað á friðlýsingu Norðurpólsins fyrir kjarnorkuvopnum. Til marks um það eru yfirlýsingar hinna kanadísku Pugwash-samtaka friðarsinnaðra vísindamanna og hvatning japanska friðarfrömuðarins Daisaku Ikeda, en bæði Pugwash og Ikeda eru handhafar friðarverðlauna Nóbels. Verði af friðlýsingunni eykur það enn á mikilvægi þess að Ísland geri slíkt hið saman, enda færðust flutningaleiðir kjarnorkuvopna þá í einhverjum tilvikum nær landinu en ella.
Hvað varðar sögu frumvarpsins og rökstuðning flutningsmanna er að öðru leyti vísað til greinargerðar fyrir frumvarpinu á 135. löggjafarþinginu, sem fylgir hér á eftir:
„Frumvarp þetta er nú flutt á Alþingi í áttunda sinn. Það var síðast flutt á 125. löggjafarþingi, árið 2000, og er nú endurflutt með þeirri breytingu einni að það nær ekki til efnavopna. Sem betur fer hafa Íslendingar nú fullgilt samning um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra sem, eins og nafnið gefur til kynna, felur í sér allar þær skuldbindingar sem friðlýsing landsins fyrir efnavopnum felur í sér.
Þörfin fyrir að Ísland hafi frumkvæði að afvopnun og friðlýsingu fyrir kjarnorkuvopnum hefur því miður fremur aukist en hitt vegna atburða á alþjóðavettvangi. Má þar nefna fregnir um áhuga á þróun kjarnorkuvopna í Íran og Norður-Kóreu og þá staðreynd að kjarnorkuveldin hunsa algerlega þau ákvæði samningsins um bann við frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna, NPT-samningsins svonefnda, sem skylda þau til kjarnorkuafvopnunar. En um leið hefur brotthvarf bandaríska hersins og lokun herstöðvarinnar gert að verkum að auðveldara ætti að vera að friðlýsa landið fyrir kjarnorkuvopnum. Það er von flutningsmanna að Alþingi geti nú sameinast um að nýta þetta tækifæri og lögbinda þann yfirlýsta vilja stjórnvalda að Ísland eigi engan þátt í þróun, geymslu eða flutningi kjarnorkuvopna og stuðli þannig að friðvænlegri heimi.
Yfirgnæfandi meiri hluti sveitarfélaga hér á landi hefur lýst því yfir að landsvæði þeirra skuli vera friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Af 79 sveitarfélögum hafa 74 verið friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum, eða 94%, og aðeins tæplega 17.000 manns búa utan friðlýsingar, sem þýðir að 95% Íslendinga eru í friðlýstum sveitarfélögum. Ætla má að þau sveitarfélög sem eftir standa – Reykjanesbær, Vogar, Sandgerði, Skútustaðahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur – hafi enn minni ástæðu til að friðlýsa ekki landsvæði sín nú þegar bandaríski herinn er farinn af landi brott.
Þó er rétt að minna á að yfirlýsingar á sveitarstjórnarstigi hafa auðvitað ekkert lagalegt gildi og almennt veikari stöðu en kjarnorkufriðlýsing landsins alls, lofthelginnar og efnahagslögsögunnar sem með frumvarpinu yrði bundin í lög. En samþykktir þessara sveitarfélaga má líta á sem afgerandi yfirlýsingu frá sveitarfélögum landsins um að friðlýsa beri landið allt og styrkja þannig ákvarðanir sveitarfélaganna. Eftir brottför hersins ætti ekkert að standa í vegi fyrir því að þessi fyrirliggjandi vilji yfirgnæfandi meiri hluta sveitarstjórna verði lögfestur og gildi fyrir landið allt. Því fylgdi svo einnig að afla alþjóðlegrar viðurkenningar annarra ríkja og alþjóðasamtaka, ekki síst kjarnorkuveldanna sjálfra, á því að Ísland sé kjarnorkuvopnalaust svæði.
Nýjustu fréttir af friðlýsingu sveitarfélaga eru þær að Reykjanesbær telur slíkt ekki vera á sínu forræði „þar sem innan bæjarmarkanna er m.a. flugverndarsvæði sem er á forræði utanríkisráðuneytisins“. (Úr bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar, 10. janúar 2008.) Reykjanesbær, sem er langstærsta sveitarfélagið af þeim fimm sem ekki eru þegar friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum, telur með öðrum orðum að utanríkisráðherra og ríkisstjórnin verði að skera úr um friðlýsingu sveitarfélagsins. Þetta eykur enn á mikilvægi þess að Alþingi taki málið fyrir eins og lagt er til í þessu frumvarpi.
Þróun mála í friðlýsingu annarra landa hefur líka verið friðelskandi fólki mjög í hag undanfarin ár. Í reynd þarf að fara norður fyrir miðbaug til að finna land sem ekki hefur skrifað undir samning um friðlýsingu fyrir kjarnorkuvopnum. Mið- og Suður-Ameríka (Tlatelolcosamningurinn), Suðaustur-Asía (Bangkok-samningurinn), Eyjaálfa og eyjarnar í Suður- Kyrrahafi (Rarotonga-samningurinn) og Suðurskautslandið eru allt svæði sem hafa verið friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Árið 1996 skrifuðu Afríkuríkin öll undir samning um friðlýsingu álfunnar (Palindaba-samningurinn) og 20 ríki álfunnar hafa staðfest samninginn þótt enn vanti átta staðfestingar upp á að hann taki gildi. Svipað er uppi á teningnum í Mið-Asíu þar sem þau ánægjulegu tíðindi áttu sér stað fyrir tveimur árum að fimm lönd skrifuðu undir slíkan samning og tvö þeirra, Kirgisistan og Úsbekistan, hafa þegar staðfest samninginn. Þá hafa Mongólar tekið það upp á sitt einsdæmi að lýsa yfir friðlýsingu landsins fyrir kjarnorkuvopnum við talsverðan fögnuð annarra ríkja á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur nú tækifæri til að fylgja t.d. þessu ánægjulega fordæmi Mongólíu á alþjóðavettvangi. Slík friðlýsing gæti þar að auki verið fyrsta skrefið í friðlýsingu Norðurlanda, sem lengi hefur verið á dagskrá friðarsinna, en ekki hlotið brautargengi enn sem komið er.
Óhætt er að slá því föstu að meiri hluti allra landa séu friðlýst og að þróunin sé öll í þá átt að friðlýsa stærri og mikilvægari svæði fyrir kjarnorkuvopnum. Á hinn bóginn er því ekki að neita að á undanförnum árum hafa sum kjarnorkuveldi, sér í lagi Indland og Pakistan, fremur verið að bæta við kjarnorkuvopnaútbúnað sinn en að stuðla að eyðingu slíkra vopna. Mestu kjarnorkuveldin, Bandaríkin og Rússland, vinna áfram að þróun kjarnorkuvígbúnaðar sem gengur þvert á ákvæði NPT-samningsins. Langflest ríki viðurkenna þó hættuna sem stafar af slíkum vopnum og hafna kenningunni um gagnkvæmt ógnarjafnvægi sem er löngu orðin úrelt ef hún hefur þá nokkurn tímann átt við.
Í því sambandi má benda á dóm Alþjóðadómstólsins í Haag um beitingu kjarnorkuvopna og ógnun þess. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki aðeins bryti notkun kjarnorkuvopna gegn alþjóðalögum, heldur líka það að ógna eða hóta því að beita þeim gegn öðru ríki. Rökstuðningur dómstólsins er sá að til þess að vopn geti talist lögmætt verði beiting þess að geta beinst að hernaðarlegum skotmörkum eingöngu en ekki óbreyttum borgurum. Eðli kjarnorkuvopna sé hins vegar þannig að beiting þeirra muni ávallt bitna á óbreyttum borgurum, auk þess sem þau hafi neikvæð umhverfisáhrif sem leiðir til enn meiri skaða óbreyttra borgara. Sams konar rök eru færð á grundvelli þess að ávallt beri að virða hlutlaus svæði, en kjarnorkuvopn séu þess eðlis að aldrei sé hægt að útiloka að beiting þeirra bitni líka á íbúum og umhverfi hlutlausra svæða. Að lokum telur Alþjóðadómstóllinn að þjóðum heims sé skylt að semja um algjöra kjarnorkuafvopnun undir ströngu alþjóðlegu eftirliti.
Fyrir utan það öryggi sem friðlýsing fyrir kjarnorkuvopnum mundi veita okkur Íslendingum er friðlýsingin stórt umhverfismál. Tímabært er að hugað sé að þeim umhverfisógnum sem okkur og heiminum öllum stafar af kjarnorkuvopnum, kjarnorkuknúnum farartækjum og kjarnorkuúrgangi. Sem fiskveiðiþjóð eiga Íslendingar sérstaklega mikið undir því að engin hætta skapist á því að geislavirk efni komist út í lífríki sjávarins í kringum landið. Sjálfsagður liður í þessu er að banna með öllu siglingar eða umferð kjarnorkuknúinna farartækja upp að landinu.
Fylgiskjöl með þessu frumvarpi eru í fyrsta lagi sýnishorn af samningi um friðlýsingu kjarnorkuvopna í rómönsku Ameríku, Tlatelolco-samningurinn svokallaði frá árinu 1967. Í annan stað fylgir með brot úr lokayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmál frá 1978. Þar er m.a. hvatt til myndunar kjarnorkulausra svæða á borð við það sem þetta frumvarp kveður á um, og að auki gert ráð fyrir að kjarnorkuveldin skuli „virða að fullu stöðu hins kjarnorkuvopnalausa svæðis“ og „virða bann við beitingu eða hótunum um beitingu kjarnorkuvopna gegn ríkjum á svæðinu.“ Þriðja fylgiskjalið er samningurinn um að dreifa ekki kjarnavopnum (Non-Proliferation Treaty, NPT) sem Ísland og 188 önnur ríki hafa fullgilt (aðeins fjögur ríki standa eftir). Fjórða fylgiskjalið er síðan samningur um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra, sem fullgiltur var árið 1997 af Íslands hálfu. Sá samningur kemur eins og áður segir í stað þess hluta sem fjallaði um efnavopn í fyrri frumvörpum af því tagi sem hér er lagt fram.
Saga frumvarpsins á þingi.
Skylt er að geta þess að þessu máli og öðrum hliðstæðum hefur verið hreyft áður á Alþingi. Að minnsta kosti fjórum sinnum, á 97., 100., 102. og 107. löggjafarþingi, hefur verið flutt tillaga til þingsályktunar um bann við geymslu og notkun kjarnorkuvopna á íslensku yfirráðasvæði. Í tvö fyrstu skiptin voru þar á ferð þingmenn Alþýðubandalagsins, Svava Jakobsdóttir og Magnús Torfi Ólafsson. Á 102. þingi var svipuð tillaga hins vegar flutt af Guðrúnu Helgadóttur og fleiri þingmönnum Alþýðubandalagsins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins. Sama tillaga var svo endurflutt á 107. þingi af þingmönnum þessara flokka auk Kvennalistans. Þar að auki hafa verið fluttar margs konar tillögur sem efninu tengjast, svo sem um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og afvopnun á Norður-Atlantshafi.
Friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum var fyrst komið í frumvarpsbúning á 109. löggjafarþingi árið 1987 og var þá flutt af þingmönnum Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Kvennalista, þeim Steingrími J. Sigfússyni, Svavari Gestssyni, Páli Péturssyni, Guðrúnu Helgadóttur, Guðrúnu Agnarsdóttur og Hjörleifi Guttormssyni. Frumvarpið var endurflutt á næsta þingi sama árs af þingmönnum Alþýðubandalagsins og Kvennalista, Steingrími J. Sigfússyni og Kristínu Einarsdóttur.
Á 115. löggjafarþingi árið 1991 var frumvarpið aftur lagt fyrir Alþingi af þingmönnum Alþýðubandalagsins, Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins og Kvennalista, þ.e. allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins. Flutningsmenn voru þá Steingrímur J. Sigfússon, Steingrímur Hermannsson, Össur Skarphéðinsson, Kristín Einarsdóttir, Páll Pétursson, Gunnlaugur Stefánsson, Kristín Ástgeirsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson.
Frumvarpið var næst flutt á 120. þingi árið 1996 af þingmönnum Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Þjóðvaka og Kvennalista. Flutningsmenn voru þá Steingrímur J. Sigfússon, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Margrét Frímannsdóttir.
Á næsta þingi, 121. löggjafarþingi, árið 1996 var frumvarpið endurflutt, en nokkrar breytingar höfðu þá orðið á þingflokkum og voru flutningsmenn þá úr Alþýðubandalaginu, Þingflokki jafnaðarmanna (þingmenn Alþýðuflokks og Þjóðvaka) og Kvennalista. Þeir voru Steingrímur J. Sigfússon, Guðmundur Árni Stefánsson, Kristín Ástgeirsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Margrét Frímannsdóttir.
Á 122. löggjafarþingi árið 1997 var frumvarpið svo flutt í fimmta sinn af sömu þingmönnum nema að þá kom Kristín Halldórsdóttir í stað Þórunnar Sveinbjarnardóttur sem hafði komið inn sem varamaður árið áður. Sömu þingmenn endurfluttu frumvarpið svo á 123. löggjafarþingi árið 1998.
Þegar frumvarpið var síðast flutt á 125. löggjafarþingi árið 2000 höfðu orðið breytingar á þingflokkaskipan en þá var frumvarpið flutt af þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar, þeim Steingrími J. Sigfússyni, Guðmundi Árna Stefánssyni, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Þuríði Backman og Össuri Skarphéðinssyni.
Alls hefur frumvarpið því verið flutt átta sinnum. Ánægjulegt er að í gegnum tíðina hefur náðst góð samstaða um frumvarpið þvert á flokkslínur eins og rakið er hér að framan. Það eru einungis þingmenn Sjálfstæðisflokksins af hinum rótgrónu þingflokkum sem ekki hafa staðið að flutningi frumvarps um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum. Er það von flutningsmanna nú að þessi samstaða haldist og eflist frekar en hitt þannig að frumvarpið hljóti nú fulla afgreiðslu á Alþingi.“
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Hugtakið kjarnorkuvopn er hér skilgreint á sama hátt og í flestum hliðstæðum tilfellum, þ.e. þegar verið er að fjalla um eða ákveða hvað skuli teljast „kjarnorkuvopn“ við skilgreiningu hugtaka í sambandi við kjarnorkuvopnalaus svæði, sbr. fylgiskjöl.
Ákvæði um „íslenskt yfirráðasvæði“ og hið „friðlýsta svæði“ skýra sig í raun sjálf. Flutningsmenn telja eðlilegt að friðlýsingin nái til alls þess svæðis sem ýtrustu kröfur Íslands, á grundvelli þjóðaréttar og fullveldisréttar, ná til, sjá einkum lög um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979, og hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna, einkum V. hluta, 55.–57. gr., og VI. hluta, 76. gr.
Um 4.–7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Um 12. gr.
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Um 15. gr.
Fylgiskjal I.
Samningur um bann við kjarnorkuvopnum í rómönsku Ameríku.
(Tlatelolco-samningurinn árið 1967.)
a. tilraunir, notkun, smíði eða öflun með nokkrum hætti á hvers kyns kjarnorkuvopnum, hvorki fyrir eigin hönd eða annars, beint eða óbeint; og
b. móttöku, geymslu, uppsetningu eða hvers konar eignaraðild að kjarnorkuvopnum, beint eða óbeint.
Aðilar skuldbinda sig einnig til að ráðast hvorki í né efla, leyfa, eða á nokkurn hátt taka þátt í tilraunum, notkun, smíði, öflun eða yfirráðum yfir hvers kyns kjarnorkuvopnum.
Stofnun sem beri nafnið „Eftirlitsstofnun með banni við kjarnorkuvopnum í rómönsku Ameríku“ skal bera ábyrgð á eftirliti með að ákvæði samningsins séu haldin og skal hún halda fundi með aðildarríkjum á tveggja ára fresti eða þegar þörf gerist. Höfuðstöðvar stofnunarinnar skulu vera í Mexíkóborg.
Stofnunin skal hafa allsherjarráð, stjórnarnefnd og ritaraembætti. Allsherjarráðið skal halda fund á tveggja ára fresti og álykta um öll mál er varða samninginn. Stjórnarnefndin skal skipuð fimm mönnum, kosnum af allsherjarráði, og skal hún starfa óslitið.
Sérhver samningsaðili skal ganga til samninga við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IAEA) um að taka upp eftirlitskerfi þeirrar stofnunar með kjarnorkumálum sínum. Hann skal skila skýrslum á tveggja ára fresti bæði til eftirlitsstofnunarinnar og til IAEA þar sem staðfest er að ekkert það sem stríðir gegn ákvæðum samningsins hafi átt sér stað á yfirráðasvæði hans.
Aðalritara er heimilt að fara fram á nánari upplýsingar um öll atvik og atriði er varða samninginn og ber að veita honum tafarlausa fyrirgreiðslu.
IAEA og stjórnarnefndin skulu hafa vald til að gera sérstakar kannanir, hinir fyrrnefndu í samræmi við samkomulag sem þeir hafa gert við hvern aðila fyrir sig en stjórnarnefndin
a. þegar fram á slíkt er farið af hálfu einhvers aðila sem hefur grun um að einhverjar framkvæmdir, sem brjóta í bága við samninginn, hafi átt sér stað eða séu í þann veginn að eiga sér stað á yfirráðasvæði annars aðila eða annars staðar á vegum hins síðarnefnda aðila eða
b. þegar farið er fram á slíkt af hálfu aðila sem sakaður er um að hafa brotið gegn ákvæðum samningsins.
Samningsaðilar, sem hyggjast sprengja kjarnorkusprengju í friðsamlegum tilgangi, skulu tilkynna það eftirlitsstofnuninni og IAEA með eins löngum fyrirvara og aðstæður krefja. Tæknilegum fulltrúum stjórnarnefndar eftirlitsstofnunarinnar og IAEA er þá heimilt að fylgjast með öllum undirbúningi og eiga greiðan aðgang að svæðinu.
Verði uppvíst um brot á samningnum skal allsherjarráðið skila skýrslu samtímis til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, til aðalritara Sameinuðu þjóðanna, til stjórnarnefndar samtaka Ameríkuríkja og til IAEA.
Öllum þjóðum rómönsku Ameríku, svo og öðrum fullvalda þjóðum sem liggja í heild sinni sunnan 35. gráðu norður á vesturhveli jarðar, er heimilt að undirrita samninginn.
Undirritendur geta við staðfestingu samningsins sett fram skilyrði (t.d. um að önnur ríki staðfesti samninginn) sem þurfi að mæta áður en þeir telji sig bundna af samningnum.
Samningurinn skal gilda um ótakmarkaðan tíma, en þó er sérhverjum samningsaðila heimilt að segja upp samningnum með þriggja mánaða fyrirvara til aðalritara enda telji viðkomandi aðili að þær aðstæður hafi komið til eða séu í þann veginn að koma til er varða brýnustu hagsmuni hans.
Framkvæmd samningsins skal frestað af hálfu allra samningsaðila komi til nýtt veldi er ráði yfir kjarnorkuvopnum.
Samningnum fylgja tveir hliðarsamningar (protocol).
Í hliðarsamningi I samþykkja Bretland og Holland að framfylgja þeim ákvæðum samningsins er lúta að banni við kjarnorkuvopnum á þeim svæðum sem eru á ábyrgð þeirra (t.d. á Falklandseyjum). Samþykktin felur í sér skuldbindingar gagnvart IAEA en ekki gagnvart eftirlitsstofnuninni.
Í hliðarsamningi II gera Bandaríkin og fleiri aðilar með sér samning um að beita ekki kjarnorkuvopnum gegn nokkrum öðrum aðila að samningnum né heldur hóta beitingu slíkra vopna. Bandaríkin áskilja sér óskoraðan lagalegan rétt til að veita eða neita aðilum utan samningsins um yfirferðarleyfi og flutningsleyfi. Bandaríkin mundu og skoða árás af hálfu samningsríkis með stuðningi kjarnorkuveldis sem brot á ákvæðum samningsins.
Bandaríkin líta svo á að sú tækni að beita kjarnorkusprengingum í friðsamlegum tilgangi sé óaðgreinanleg frá þeirri tækni að framleiða kjarnorkuvopn. Þau leggja því þann skilning í skilgreiningu samningsins á kjarnorkuvopnum að hún nái til hvers kyns tækja sem nota má til að framleiða kjarnorku.
Fylgiskjal II.
Úr lokayfirlýsingu aukaþings Sameinuðu þjóðanna
um afvopnunarmál 1978.
61. Rétt er að styðja myndun slíkra svæða með það endanlega markmið í huga að losa heiminn að fullu við kjarnorkuvopn. Við myndun slíkra svæða skal tekið tillit til sérkenna hvers svæðis. Þau ríki, sem þátt taka í myndun slíkra svæða, ættu að skuldbinda sig til að styðja að fullu markmið, tilgang og grundvallarreglur þeirra samninga eða samkomulaga er miða að stofnun svæðanna og tryggja þar með að þau verði í raun laus við kjarnorkuvopn.
62. Hvað varðar slík svæði er gert ráð fyrir að kjarnorkuveldin taki á sig vissar skuldbindingar sem samið skal um við lögmæt yfirvöld á svæðinu, einkum:
a. að virða að fullu stöðu hins kjarnorkuvopnalausa svæðis;
b. að virða bann við beitingu eða hótunum um beitingu kjarnorkuvopna gegn ríkjum á svæðinu.
63. Með tilliti til ríkjandi aðstæðna hverju sinni og án þess að það rýri gildi annarra ráðstafana sem til greina koma á öðrum svæðum eru eftirfarandi ákvæði sérlega æskileg:
a. Viðurkenning allra viðkomandi ríkja á þeim ákvæðum er tryggja fullt gildi samningsins um bann við kjarnorkuvopnum í rómönsku Ameríku (Tlatelolco-samningsins) með sérstöku tilliti til þeirra skoðana sem fram komu á tíundu ráðstefnunni um framfylgd samningsins.
b. Undirritun og samþykki á viðbótarákvæðum við samninginn um bann við kjarnorkuvopnum í rómönsku Ameríku (Tlatelolco-samninginn) af hálfu þeirra ríkja sem rétt eiga á að gerast aðilar að þeim samningum en hafa ekki gert það.
c. Í Afríku, þar sem Einingarsamtök Afríku hafa samþykkt ályktun um kjarnorkuafvopnun svæðisins, skal öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þetta markmið verði hindrað.
d. Að taka til alvarlegrar athugunar þær þörfu og áríðandi ráðstafanir sem lýst er í málsgreinunum hér að ofan og nauðsynlegar eru til að hrinda í framkvæmd tillögunni um lýsingu kjarnorkuvopnalauss svæðis í Miðausturlöndum í samræmi við viðeigandi ályktanir allsherjarþingsins þar sem allir aðilar, sem málið varðar beint, hafa lýst yfir stuðningi sínum við hugmyndina og þar sem hætta er á útbreiðslu kjarnorkuvopna. Myndun kjarnorkuvopnalauss svæðis í Miðausturlöndum mundi stórlega bæta horfur á alheimsfriði og öryggi. Meðan beðið er eftir stofnun slíks svæðis í þessum heimshluta ættu ríki á svæðinu að lýsa því yfir formlega að þau muni forðast á gagnkvæmum grundvelli að framleiða, afla sér eða á nokkurn annan hátt að eignast kjarnorkuvopn og kjarnorkusprengibúnað og að heimila staðsetningu kjarnorkuvopna á yfirráðasvæðum sínum af hálfu þriðja aðila og samþykkja að leggja öll sín kjarnorkumál undir eftirlit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Taka skal til athugunar að öryggisráðið taki þátt í undirbúningi stofnunar kjarnorkuvopnalauss svæðis í Miðausturlöndum.
e. Öll ríki Suður-Asíu hafa lýst yfir þeirri ákvörðun sinni að heimila ekki kjarnorkuvopn í ríkjum sínum. Engar ráðstafanir skyldu gerðar af þeirra hálfu er yrðu til þess að vikið yrði af þeirri braut. Í þessu samhengi hefur spurningin um myndun kjarnorkuvopnalauss svæðis verið afgreidd í ýmsum ályktunum öryggisráðsins en þar er málið enn til umfjöllunar.
64. Stofnun friðarsvæða í ýmsum heimshlutum með viðeigandi skilyrðum skilgreindum af viðkomandi ríkjum á svæðinu þar sem tekið er mið af sérkennum svæðisins og grundvallarhugsjón stofnsamnings Sameinuðu þjóðanna og í samræmi við alþjóðalög getur stuðlað að eflingu öryggis ríkja innan slíkra svæða og að heimsfriði og öryggi. Í þessu sambandi bendir allsherjarráðið á tillögur um stofnun friðarsvæða, m.a.:
a. Í Suðaustur-Asíu þar sem ríki á svæðinu hafa lýst áhuga á stofnun slíks svæðis í samræmi við sjónarmið sín.
b. Á Indlandshafi með tilliti til umræðna öryggisráðsins og viðeigandi ályktana þess og þeirrar nauðsynjar að tryggja frið og öryggi á svæðinu.
65. Að koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnorkuvopna er brýnn og óaðskiljanlegur þáttur í viðleitninni til að stöðva vígbúnaðarkapphlaupið og snúa því við. Markmiðið með takmörkun kjarnorkuvopna er annars vegar að koma í veg fyrir tilkomu fleiri kjarnorkuþjóða í viðbót við kjarnorkuveldin fimm og hins vegar að fækka og loks útrýma kjarnorkuvopnum að fullu. Þetta felur í sér skuldbindingar og ábyrgð bæði af hálfu kjarnorkuvopnaðra ríkja og ríkja sem ekki ráða yfir kjarnorkuvopnum. Skulu hinir fyrrnefndu leitast við að stöðva vígbúnaðarkapphlaupið með því að hrinda tafarlaust í framkvæmd þeim aðgerðum sem lýst er í viðeigandi greinum þessarar lokayfirlýsingar en öll ríki skulu beita sér fyrir að koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnorkuvopna.
66. Mögulegt er og skylt að gera ráðstafanir á innanlandsvettvangi sem og á alþjóðavettvangi til að minnka hættu á útbreiðslu kjarnorkuvopna án þess að stofna í hættu framboði á orku og þróun kjarnorkutækni til friðsamlegra nota. Því skulu kjarnorkuveldin og þau ríki, sem ekki búa yfir kjarnorkuvopnum, leitast við að gera sameiginlegar ráðstafanir til að komast að alþjóðlegu samkomulagi um aðferðir til að stemma stigu við útbreiðslu kjarnorkuvopna.
67. Full framkvæmd allra atriða þeirra samkomulaga sem til eru um stöðvun á útbreiðslu kjarnorkuvopna, t.d. samningsins um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og samningsins um bann við kjarnorkuvopnum í rómönsku Ameríku (Tlatelolco-samningurinn), af hálfu þeirra sem aðild eiga að samningunum er mikilvægt framlag til þessarar viðleitni. Fylgi við slíka samninga hefur aukist á síðari árum og sú von hefur verið látin í ljós af hálfu aðila að slíkum samningum að framhald verði á þeirri þróun.
68. Ráðstafanir, sem gerðar eru til að koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnorkuvopna, ættu ekki að skerða fullan rétt þjóða til að framkvæma og þróa áætlanir sínar um friðsamlega notkun kjarnorku til efnahagslegrar og félagslegrar þróunar í samræmi við hagsmuni sína og þarfir. Öll ríki ættu og að eiga aðgang að og hafa fullt frelsi til að afla sér tækniþekkingar, búnaðar og efna til friðsamlegrar notkunar á kjarnorku með sérstöku tilliti til þarfa þróunarríkjanna. Alþjóðleg samvinna á þessu sviði ætti að eiga sér stað undir viðurkenndu alþjóðlegu eftirliti í umsjá Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar án mismununar til að fyrirbyggja útbreiðslu kjarnorkuvopna.
69. Tekið skal fullt tillit til ákvarðana sérhverrar þjóðar á sviði friðsamlegrar nýtingar kjarnorkuvopna án þess að stofna í hættu orkunýtingarstefnu hvers ríkis fyrir sig eða alþjóðlegri samvinnu, samningum eða verksamningum um friðsamlega nýtingu kjarnorku, enda séu viðhafðar þær varúðarráðstafanir sem getið er um hér að ofan.
70. Í samræmi við niðurstöður og ákvæði samþykktar allsherjarráðsins nr. 32/50 frá 8. desember 1977 skal alþjóðleg samvinna um flutning og nýtingu á kjarnorku til efnahagslegrar og þjóðfélagslegrar þróunar efld, einkum í þróunarlöndum.
71. Reynt verði að leiða til lykta störf nefndarinnar um nýtingu kjarnorkueldsneytis (Nuclear Fuel Cycle Evaluation) í fullu samræmi við markmið þau sem sett voru fram í lokayfirlýsingu á stofnþingi nefndarinnar.
72. Öll ríki skulu halda fast við milliríkjasamþykkt um bann við notkun eiturefna og sýkla í hernaði sem undirritaður var í Genf 17. júní 1925.
73. Öll ríki, sem ekki eru þegar aðilar að samþykktinni um bann við þróun, framleiðslu og birgðasöfnun gerla- (lífrænna) og eiturefna og um eyðingu þeirra, ættu að íhuga aðild að henni.
74. Ríki skulu einnig íhuga möguleika á því að gangast inn á marghliða samninga sem þegar hafa verið gerðir um afvopnunarmál og getið er um hér að neðan.
75. Algert bann við þróun, framleiðslu og birgðasöfnun eiturefnavopna og eyðing slíkra vopna eru meðal brýnustu aðgerða til afvopnunar. Því er gerð milliríkjasamnings í þessu skyni eitt brýnasta verkefnið sem fyrir liggur en umræður um þessi mál hafa nú staðið yfir um nokkurra ára skeið. Að gerðum slíkum milliríkjasamningi skyldu öll ríki stuðla að því að tryggja sem víðtækast gildi samningsins með tímabærri undirritun og gildistöku hans.
76. Nauðsynlegt er að gera milliríkjasamning er bannar þróun, framleiðslu, birgðasöfnun og notkun geislavopna.
Fylgiskjal III.
Samningur um að dreifa ekki kjarnorkuvopnum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal IV.
Samningur um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og
um eyðingu þeirra
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.