Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 138. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 151  —  138. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um tæki og búnað á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.

Frá Eygló Harðardóttur.



    Hvað er ætlunin að gera við tæki og búnað sem frjáls félagasamtök, einstaklingar og fyrirtæki hafa gefið minni heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni, en samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir að sjúkrahúsasvið stofnananna verði nær lögð niður?