Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 244. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 275  —  244. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um vanskil meðlagsgreiðslna.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



     1.      Hversu margir meðlagsgreiðendur eru hér á landi, skipt eftir kynjum?
     2.      Hver voru vanskil þessa hóps í árslok 2008, skipt eftir kynjum?
     3.      Hver voru vanskil þessa hóps í árslok 2009, skipt eftir kynjum?
     4.      Hver voru vanskil þessa hóps 30. júní 2010, skipt eftir kynjum?
     5.      Hefur greiðslustaða þessa þjóðfélagshóps verið athuguð sérstaklega eftir hrun fjármálakerfisins haustið 2008?


Skriflegt svar óskast.