Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 366. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 468  —  366. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um kostnað við vegagerð og tekjur af samgöngum.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hvað hefur lagning þjóðvegar 41 (Reykjanesbrautar) kostað íslenska ríkið, framreiknað frá upphafi framkvæmda, sundurliðað eftir framkvæmdaárum?
     2.      Hvað kostuðu Héðinsfjarðargöng, framreiknað frá upphafi framkvæmda, sundurliðað eftir framkvæmdaárum?
     3.      Hversu miklar tekjur fær íslenska ríkið af samgöngum og samgöngutækjum að meðaltali á ári hverju, sundurliðað eftir flokkum?


Skriflegt svar óskast.