Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 222. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 610 — 222. mál.
utanríkisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um kosti fríverslunarsamnings við Bandaríkin.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hverjir væru kostir fríverslunarsamnings við Bandaríkin að mati ráðherra?
1. Könnun á gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin.
Á undanförnum árum hefur möguleiki á gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin verið vandlega kannaður, bæði á vettvangi EFTA og tvíhliða á milli Íslands og Bandaríkjanna. Niðurstaðan í báðum tilvikum varð sú að ekki væru til staðar forsendur til að hefja fríverslunarviðræður við Bandaríkin. Ræður tvennt þar mestu um. Í fyrsta lagi hafa Bandaríkin gefið skýrt til kynna að forsenda fríverslunarviðræðna, hvort sem væri við EFTA-ríkin eða Ísland, væri sú að markaðsaðgangur fyrir landbúnaðarvörur, þ.m.t. kjöt- og mjólkurvörur, yrði bættur mjög verulega frá því sem nú er. Í öðru lagi hafa Bandaríkin gefið til kynna að Ísland sé ekki ofarlega á forgangslista þeirra yfir hugsanlega samningsaðila við gerð fríverslunarsamninga, en Bandaríkin líta mjög til umfangs viðskipta við slíka forgangsröðun.
Í þessu samhengi ber að hafa í huga að það hefur verið stefna Bandaríkjanna í gegnum tíðina að leggja áherslu á að semja um viðskiptakjör við önnur ríki í fjölþjóðlegum samningum á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) fremur en með gerð tvíhliða fríverslunarsamninga. Í forsetatíð George W. Bush var þó um tíma lögð aukin áhersla á gerð fríverslunarsamninga við önnur ríki en síðan hefur hægt verulega á fríverslunarviðræðum Bandaríkjanna, einkum vegna andstöðu Bandaríkjaþings. Þrír síðustu fríverslunarsamningar sem Bandaríkin hafa undirritað (við Suður-Kóreu, Panama og Kólumbíu) bíða enn afgreiðslu í Bandaríkjaþingi. Enn fremur er það stefna bandarískra stjórnvalda að líta einkum til ríkjanna beggja vegna Kyrrahafsins þegar kemur að næstu fríverslunarviðræðum þeirra.
Af framangreindu má ráða að fríverslunarviðræður Íslands við Bandaríkin, hvort sem er tvíhliða eða sem hluti af EFTA, geta tæpast talist raunhæfur kostur eins og sakir standa. Reynsla Svisslendinga styður þessa niðurstöðu. Í könnunarviðræðum þeirra og Bandaríkjanna um mögulegan fríverslunarsamning fyrir nokkrum árum varð niðurstaðan sú að ekki væri ástæða til að hefja formlegar fríverslunarviðræður á milli ríkjanna. Ekki voru taldar líkur á að samningar mundu nást varðandi markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur sökum krafna Bandaríkjanna í þeim efnum. Í þessu samhengi má einnig benda á að Bandaríkin beita sér fyrir verulegri lækkun eða niðurfellingu tolla á landbúnaðarvörum í Doha-lotunni innan WTO.
2. Kostir við gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin.
Vöruviðskipti.
Útflutningur á vörum frá Íslandi til Bandaríkjanna nam 21,6 milljörðum kr. fyrstu tíu mánuði ársins 2010. Útflutningurinn nam 19,4 milljörðum kr. árið 2009, 25,7 milljörðum kr. árið 2008 og 16 milljörðum kr. árið 2007. Árið 2009 var hlutfall útflutnings til Bandaríkjanna 3,9% af heildarútflutningi Íslands, 5,5% árið 2008 og 5,3% árið 2007. Innflutningur frá Bandaríkjunum til Íslands nam 32 milljörðum kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010. Innflutningurinn nam 31 milljarði kr. árið 2009, 41,4 milljörðum kr. árið 2008 og 57,6 milljörðum kr. árið 2007. Árið 2009 var hlutfall innflutnings frá Bandaríkjunum 6,9% af heildarinnflutningi til Íslands, 8,0% árið 2008 og 13,4 % árið 2007. (Heimild: Hagstofa Íslands.)
Við innflutning til Bandaríkjanna frá aðildarríkjum WTO, en það eru þau kjör sem Íslandi bjóðast í dag, leggja Bandaríkin engan toll á fjölmargar vörur. Á það meðal annars við um langflestar sjávarafurðir sem Ísland flytur út til Bandaríkjanna og nokkrar helstu landbúnaðarafurðir sem Ísland leggur áherslu á í útflutningi, svo sem lifandi hross og drykkjarvatn. Lágir tollar eru lagðir á nokkrar útflutningsvörur Íslands til Bandaríkjanna, t.d. frosið og ferskt lambakjöt, smjör, lýsi, reiðtygi, kaðla og vogir. Í nokkrum afmörkuðum tilvikum er 10–15% tollur lagður á innflutning íslenskra afurða til Bandaríkjanna, t.d. á skyr, lifur, hrogn og sælgæti. Kostir við gerð fríverslunarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna væru helst þeir að innflutningstollar sem lagðir eru á íslenskar vörur yrðu í mörgum tilfellum felldir niður. Fríðindatollur sá sem Bandaríkin bjóða þeim ríkjum sem þau hafa gert fríverslunarsamning við er í langflestum tilfellum 0% og má gera ráð fyrir að Íslandi yrðu boðin sömu kjör.
Erfitt er að segja fyrir um niðurstöðu samningaviðræðna en gera má ráð fyrir að fríverslunarsamningur við Bandaríkin gæti leitt til aukins útflutnings á ýmsum landbúnaðarafurðum og öðrum afurðum og vörum sem í dag bera toll við innflutning. Gera má ráð fyrir að Bandaríkjamenn færu fram á gagnkvæmni hvað varðar markaðsaðgang og gerðu kröfu um niðurfellingu tolla við innflutning til Íslands á landbúnaðarafurðum, m.a. kjöti og kjötvörum og jafnvel mjólkurafurðum. Yrði fallist á þær kröfur hefði það óumflýjanlega í för með sér að m.a. íslenskt kjöt, t.d. lamba-, nauta- og svínakjöt, mundi lenda í samkeppni við innfluttar bandarískar kjötafurðir. Það gæti skilað sér í lægra vöruverði og auknu vöruúrvali fyrir neytendur en jafnframt auka samkeppni við innlenda framleiðendur.
Þjónustuviðskipti.
Árið 2009 nam útflutningur á þjónustu frá Íslandi til Bandaríkjanna 27,8 milljörðum kr. og innflutningur á þjónustu frá Bandaríkjunum nam 50,6 milljörðum kr. (Heimild: Hagstofa Íslands.)
Hér á landi hefur vægi þjónustuviðskipta aukist síðustu ár og má sem dæmi nefna þjónustu á sviði orkumála og hátækni. Ef gerður yrði fríverslunarsamningur við Bandaríkin sem mundi ná yfir þjónustuviðskipti gæti það haft jákvæð áhrif á viðskiptatækifæri íslenskra fyrirtækja í Bandaríkjunum. Þess ber þó að geta að ríki eru almennt treg til að opna markað sinn verulega á sviði þjónustuviðskipta nema bættur markaðsaðgangur fyrir þjónustu komi í staðinn.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 610 — 222. mál.
Svar