Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 419. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 691  —  419. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um fjármálaeftirlit íslenskra sendiráða.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvað brást í eftirliti ráðuneytisins er uppvíst varð um fjárdrátt starfsmanns íslenska sendiráðsins í Vín?
     2.      Hver sér um fjármálaeftirlit íslensku sendiráðanna?


Skriflegt svar óskast.