Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 487. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 789  —  487. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um varðveislu íslenskrar menningararfleifðar á stafrænu formi.

Flm.: Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að setja fram markvissa, heildstæða og metnaðarfulla stefnu um varðveislu íslenskrar menningararfleifðar á stafrænu formi og leggja drög að því að verkið verði unnið á næstu 10–20 árum eftir því hversu umfangsmikið það verður talið.

Greinargerð.


    Kveikjan að þessari þingsályktunartillögu er grein eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóra, sem ber heitið „Risavaxið menningarverkefni sem hefja þarf vinnu við“ (Sunnudagsmogginn, 23. janúar 2011). Í greininni segir m.a.: „Snemma í janúar var frá því skýrt í Brussel að nefnd þriggja vísra manna hefði komizt að þeirri niðurstöðu að kostnaður við að koma bókasöfnum, öðrum söfnum og þjóðskjalasöfnum í stafrænt form og varðveita með þeim hætti evrópska menningararfleifð mundi nema um 100 milljörðum evra … Markmiðið með slíku verkefni væri annars vegar að auðvelda fólki aðgang að þeirri samansöfnun þekkingar sem þar væri að finna og hins vegar að koma í veg fyrir að þessi menningarverðmæti yrðu eyðilögð vegna hernaðarátaka eða náttúruhamfara. Í því sambandi var minnt á að innrás Bandaríkjanna í Írak leiddi til þess að ein milljón bóka, 10 milljónir skjala og 14 þúsund fornleifamunir eyðilögðust.“
    Styrmir Gunnarsson fjallar og í grein sinni um mikilvægi þess að við Íslendingar varðveitum menningararfleifð okkar, mikilvægi þess að komandi kynslóðir geti kynnt sér og þekki sögu lands og þjóðar sem þjóðarvitund okkar byggist á að verulegu leyti.
    Það er að sönnu ekki hægt að bera saman hugsanlega eyðileggingu eða glötun menningarverðmæta á Íslandi og í stríðshrjáðum löndum. Engu síður er umræðan um varðveislu menningararfleifðar okkar umhugsunarverð. Við hljótum að spyrja þeirra spurninga hvernig varðveita megi menningararfleifð okkar og gera hana aðgengilega komandi kynslóðum.
    Markmið þessarar þingsályktunartillögu er annars vegar að koma í veg fyrir að menningarverðmæti glatist eða eyðileggist og hins vegar að auðvelda fólki aðgang að menningarverðmætum sem væri að finna á stafrænu formi.
    Með mótun markvissrar, heildstæðrar og metnaðarfullrar stefnu þarf að tryggja að bókmenntaverk, tónverk, myndverk og önnur menningarverðmæti fyrri alda, áratuga og ára verði alltaf tiltæk almenningi á stafrænu formi.
    Tækniframfarir eru hraðar og miklar og ný tæki, t.d. til lestrar, eru að ryðja sér til rúms. Má þess vænta að innan tíðar verði slík tæki orðin mjög almenn. Þess vegna þarf að hefja þetta verk og koma menningararfleifð okkar í það form sem nýjasta tækni gefur kost á.
    Slíkt menningarverkefni er umfangsmikið og krefst verulegra fjármuna en með því að setja raunhæf markmið til nokkurra ára ætti verkefnið að geta orðið fjárhagslega framkvæmanlegt. Í ár verður haldið upp á 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar og í náinni framtíð eru önnur tvö stórafmæli þjóðarinnar, 100 ára afmæli fullveldis 1. desember 2018 og 1100 ára afmæli Alþingis 2030. Þjóðargjöfin gæti verið sú að hefjast handa við þetta verkefni í ár og ljúka því árið 2030.