Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 489. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 791  —  489. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um aðstoðarmenn ráðherra ríkisstjórnarinnar, fjölmiðlafulltrúa og tímabundnar ráðningar í Stjórnarráðinu.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hversu margir eru aðstoðarmenn ráðherra ríkisstjórnarinnar?
     2.      Hversu margir eru fjölmiðlafulltrúar hvers ráðuneytis?
     3.      Hversu margir starfsmenn hvers ráðuneytis eru ráðnir tímabundið og hver eru verkefni þeirra? Var viðkomandi starf auglýst og hvenær var ráðið í viðkomandi stöður?


Skriflegt svar óskast.