Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 565. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 954  —  565. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um framsal einstaklinga til annarra ríkja.

Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Hversu margir einstaklingar hafa verið framseldir (afhentir) til annarra ríkja á grundvelli alþjóðasamninga sl. fimm ár? Hversu mörgum slíkum beiðnum hefur verið hafnað á sama tímabili?
     2.      Hversu margar framsalsbeiðnir hefur íslenska ríkið sett fram sl. fimm ár? Hversu mörgum af þeim hefur verið hafnað?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum og einnig eftir ríkisfangi einstaklinganna sem beiðnirnir snúast um.


Skriflegt svar óskast.