Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 133. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 982  —  133. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2008, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Hörpu Theodórsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Utanríkismálanefnd óskaði álits viðskiptanefndar á tillögunni og er það birt sem fylgiskjal með nefndaráliti þessu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2008, frá 4. júlí 2008, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1569/2007 um að koma á fót aðferð til að ákvarða jafngildi reikningsskilastaðla sem útgefendur verðbréfa í þriðja landi beita samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB og 2004/109/EB. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 4. janúar 2009. Framsetning tillögunnar er að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmið reglugerðinnar er að setja skilmála sem góðar reikningsskilavenjur þriðju ríkja þurfa að uppfylla til að vera vegnar að jöfnu við alþjóðlega reikningsskilastaðla sem Evrópusambandið samþykkir.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum, að hluta til fjalla um það efni. Málið er að því leytinu tengt tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2010, sem er 199. mál á yfirstandandi þingi. Fyrirhugað er að leggja frumvarpið fram á yfirstandandi þingi en það hefur tvívegis áður verið lagt fram en ekki hlotið afgreiðslu (245. mál á 136. löggjafarþingi og 218. mál á 138. löggjafarþingi). Eftir framlagningu mun það að líkindum koma til meðferðar viðskiptanefndar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Birgitta Jónsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. mars 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Álfheiður Ingadóttir.


Bjarni Benediktsson.



Helgi Hjörvar.


Ólöf Nordal.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Fylgiskjal.


Álit frá meiri hluta viðskiptanefndar.



    Utanríkismálanefnd óskaði eftir því með tölvupósti, dags. 1. febrúar 2011, að viðskiptanefnd léti í té álit sitt á:
     a.      tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2010 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn (235. mál).
     b.      tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2010 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (199. mál).
     c.      tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2008, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (133. mál).
    Meiri hlutinn gerir ekki athugasemd við það að hinum stjórnskipulega fyrirvara verði aflétt af umræddum ESB-gerðum.
    Guðlaugur Þór Þórðarson, Sigurður Kári Kristjánsson og Valgerður Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Eygló Harðardóttir skrifar undir álit þetta með fyrirvara þar sem nefndin hafi hvorki haft aðkomu að því sem óskað er álits á né tækifæri til að taka formlega afstöðu.

Alþingi, 3. mars 2011

Lilja Mósesdóttir, form.
Magnús Orri Schram.
Skúli Helgason.
Eygló Harðardóttir, með fyrirvara.
Atli Gíslason.