Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1375  —  592. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um fjárhagsfyrirgreiðslu til fyrirtækjanna VBS hf., Saga Capital hf. o.fl.

     1.      Hve stór hluti 46 milljarða kr. fjárhagsfyrirgreiðslu sem fyrirtækin VBS hf. og Saga Capital hf. fengu frá ríkissjóði telst nú tapaður?
    Ríkissjóður seldi þessar kröfur til Seðlabanka Íslands sem seldi þær svo til Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. Ríkissjóður hefur afskrifað 192,2 milljarða kr. í heildina vegna krafna á fjármálafyrirtæki.

     2.      Hvert er verðmat fjármálaráðuneytisins á eftirstöðvum skuldabréfanna sem fyrirtækin gáfu út og voru að andvirði 46 milljarðar kr.?
    Kröfurnar eru í eigu ESÍ og hefur ráðuneytið því ekki upplýsingar um það.

     3.      Hvert er verðmat ráðuneytisins á 6 milljarða kr. skuldabréfi sem Askar Capital gaf út og Seðlabanki Ísland yfirtók í febrúar 2010?
    Kröfurnar eru í eigu ESÍ og hefur ráðuneytið því ekki upplýsingar um það.

     4.      Hvert er mat ráðuneytisins á raunvirði eigna sem fram koma í töflu 2.5 á blaðsíðu 16 í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2009?
    Ráðuneytið leggur ekki mat á kröfur í eigu ESÍ.