Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 815. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1702  —  815. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir eru starfandi á verktakasamningum í ráðuneytinu?

    Hjá ráðuneytinu voru tveir starfsmenn á verktakagreiðslum í maímánuði. Annar var sérfræðingur í framkvæmd kosninga og hefur nú lokið störfum. Hinn er lögfræðingur, sérfræðingur m.a. í mannréttindamálum og sinnir verkefnum þeim tengdum fyrir ráðuneytið þegar á þarf að halda.