Tollalög o.fl.

Mánudaginn 12. mars 2012, kl. 17:34:12 (6280)


140. löggjafarþing — 67. fundur,  12. mars 2012.

tollalög o.fl.

584. mál
[17:34]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hvers vegna í ósköpunum kom þetta frumvarp ekki fram fyrir svona tveim, þrem eða fjórum vikum? Þetta lá allt saman fyrir. Nú er verið að koma hér fram með frumvarp sem þarf að keyra í gegn í hvelli. Þetta er ívilnandi ákvæði, það er ekkert í þeim sem segir að ekki megi afgreiða þetta hvenær sem er. Ég skil ekki þennan seinagang og þessa verkstjórn.