Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar

Mánudaginn 30. apríl 2012, kl. 20:55:59 (8791)


140. löggjafarþing — 92. fundur,  30. apr. 2012.

niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

689. mál
[20:55]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér virðist það umræðuefni sem hv. þingmaður imprar á undir þessari umræðu vera efni í aðra. Ég óska eftir því við hv. þingmann að hann sendi mér þessa spurningu skriflega ef hv. þingmaður vildi vera svo vænn svo ég geti unnið með hana eins fljótt og mögulegt er.