140. löggjafarþing — 35. fundur, 13. des. 2011.
ráðstafanir í ríkisfjármálum.
195. mál
Forseta hefur borist bréf frá Gunnari Braga Sveinssyni, þingflokksformanni Framsóknarflokksins, um að þingflokkur Framsóknarflokksins óski eftir því að ræðutími við 2. umr. þingmáls 195, ráðstafanir í ríkisfjármálum, verði tvöfaldaður, samanber 4. mgr. 62. gr. þingskapa, vegna mikilvægis málsins. Mun því ræðutími verða tvöfaldaður við 2. umr. málsins.