Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 36. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 36  —  36. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um styttingu þjóðvegarins milli höfuðborgarsvæðisins og Norðausturlands
með lagningu nýs vegar á svonefndri Svínavatnsleið.


Flm.: Sigmundur Ernir Rúnarsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Róbert Marshall,
Jónína Rós Guðmundsdóttir, Árni Johnsen, Þór Saari.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að hlutast hið fyrsta til um að hafinn verði undirbúningur að gerð nýs vegar á svonefndri Svínavatnsleið (Húnavallaleið). Fjármögnun framkvæmda fari fram með töku veggjalda.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var áður flutt á 139. löggjafarþingi og er nú endurflutt.
    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að hafinn verði undirbúningur að gerð vegar sem styttir aðalleið milli landshluta hvað mest allra raunhæfra möguleika til veglagningar hér á landi. Jafnframt verður að telja að veglagningin yrði ein arðsamasta samgönguframkvæmd sem mögulegt er að ráðast í. Er ekki vitað til þess að stytting nokkurs vegar á landinu sé eins hagkvæm þjóðhagslega.
    Lengi hefur verið horft til þessarar vegstyttingar sem hefur bæði verið nefnd Húnavallaleið og Svínavatnsleið. Áætla má að leiðin muni liggja af núverandi þjóðvegi 1 í landi Brekkukots, norðan Svínavatns og tengjast hringveginum aftur við Fagranes í Langadal. Leiðin er tæplega 17 km löng og styttir hringveginn um allt að 14 km. Áætla verður að leiðin verði að liggja yfir nokkurt votlendi í landi Orrastaða og yfir a.m.k. þrjár ár á leiðinni, Stóru-Giljá, Fremri-Laxá og Blöndu. Blöndu þarf að brúa með nokkuð stórri brú, um 156 metra langri yfir fimm brúarhöf. Brúa þarf Fremri-Laxá með 20–30 metra langri brú sem yrði að svipaðri lengd og sú sem er þar fyrir. Í stað brúar yfir Stóru-Giljá má hugsanlega setja vegræsi, sömu stærðar og nú ber ána undir hringveginn. Áætla má að þessi nýja þjóðleið mundi að einhverju leyti leysa af hólmi þá totu hringvegarins sem liggur í gegnum Blönduósbæ og er, eins og sjá má á landakortum, augljós hlykkur á þjóðleiðinni um Norðurland.
    Sveitarstjórnarmenn í Austur-Húnavatnssýslu hafa ávallt lagst gegn lagningu vegar á Svínavatnsleið. Í september 2010 höfnuðu sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps því að gera ráð fyrir vegi á þessum stað í aðalskipulagi sveitarfélaganna sem gilda á allt til ársins 2030. Skipulagsstofnun lagði til í tveimur bréfum til umhverfisráðherra, dags. 3. janúar 2011, varðandi annars vegar aðalskipulag Blönduósbæjar og hins vegar Húnavatnshrepps, að aðalskipulag sveitarfélaganna yrði staðfest án þess að gert yrði ráð fyrir veginum, þó með þeim fyrirvara: „[...] að ekki verði heimilaðar framkvæmdir sem geti hindrað þau áform […] og að Blönduósbær og Vegagerðin hefji samráðsferli þar sem leitað verður leiða til að finna framtíðarlausn á legu Hringvegar í Austur-Húnavatnsssýslu áður en kemur að næstu endurskoðun aðalskipulags […].“ Með samhljóða bréfum umhverfisráðherra til Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps, dags. 31. maí sl., féllst ráðherra á tillögu Skipulagsstofnunar frá 3. janúar sl. um að staðfesta aðalskipulag sveitarfélaganna með þeim áskilnaði að staðfestingu skipulags á svæði undir veglínu Húnavallaleiðar (Svínavatnsleiðar) væri frestað.
    Í þeim bréfasamskiptum, sem frá greinir hér að framan, ber orðið „framtíðarlausn“ á góma. Öllum sem kynnt hafa sér málið má ljóst vera í hverju slík lausn felst. Framtíðin kallar á nýjan veg á þessum slóðum. Þó er hætt við, vegna innansveitarbaráttu, að sæst verði á einhverja málamiðlun sem gagnast fæstum landsmönnum öðrum en heimafólki í Austur-Húnavatnssýslu. Ef íbúar Blönduóss sitja við sinn keip gæti það leitt til þeirrar niðurstöðu að valin yrði styttri leið meðfram Svínavatni og gerð ný brú skammt utan við núverandi brú á móts við Ártún. Það yrði mun dýrari framkvæmd en Svínavatnsleið og hefði ekki í för með sér það hagræði í innanhéraðssamgöngum sem hér er vikið að, auk þess sem þá mundu íbúar Blönduóss missa möguleika á að hafa þjónustu við veginn þar sem hann lægi ekki innan sveitarfélagsins.
    Eðlilega óttast ýmsir íbúar á Blönduósi að missa spón úr aski sínum dragi að ráði úr umferð þar. Á móti kemur að á þriggja kílómetra kafla nýju norðurleiðarinnar, sem þessi þingsályktunartillaga fjallar um, milli Fagraness og marka Móbergs og Strjúgsstaða, sem verður áfram í landi Blönduósbæjar í Langadal, mætti koma upp þjónustu fyrir vegfarendur sem bætti slíkan missi upp. Má sem hliðstæðu benda á ráðstafanir sem á sínum tíma voru gerðar vegna færslu Suðurlandsvegar við Hellu yfir á nýja brú. Í því tilviki voru heimamenn styrktir til þess að koma á fót þjónustu við vegfarendur við nýju brúna. Þá er og vert að geta þess að ný brú yfir Blöndu í miðjum Langadal, nokkurn veginn miðja vegu milli brúnna yfir Blönduós og við Löngumýri verður augljós samgöngubót innan héraðs sem ætla má að styrki innri gerð samfélagsins á svæðinu.
    Ekki verður fram hjá því litið að stytting hringvegarins á þessum slóðum um allt að 14 km hefði umtalsverða þýðingu fyrir atvinnu og samfélag á Norðausturlandi og fyrir þá nokkur hundruð einstaklinga sem dag hvern fara þarna um á leið sinni milli landshluta. Leiðin gagnast jafnvel Siglfirðingum þar sem leiðin til Siglufjarðar yrði lengri væri farið um Þverárfjall heldur en um þennan nýja hringvegarkafla. Í þessu efni er einnig rétt að nefna að þjóðleiðin milli Reykjavíkur og Akureyrar er mest notaða vöruflutningaleið landsins. Stytting hennar úr 389 km niður í allt að 375 km, eða sem svarar 3,5% af leiðinni, getur hæglega sparað um hálfa milljón króna á ári fyrir þá flutningabíla sem oftast aka þessa leið.
    Lækkun flutningskostnaðar er lífsspursmál fyrir fjöldamörg framleiðslufyrirtæki á landsbyggðinni auk þess sem slíkt er líklegt til að hafa veruleg áhrif á lífskjör almennings. Stytting þjóðleiða hefur þegar skilað umtalsverðu hagræði í þessa veru. Má þar helst benda á liðlega 40 km styttingu vegarins milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, um svonefnda Þröskulda, sem hefur lækkað flutningskostnað á þeirri leið um allt að 10% og þar með leitt til lækkunar vöruverðs. Hagsmunir flutningsaðila – og þar með framleiðenda og neytenda – eru þó hvað ríkastir á helstu þjóðleið landsins, milli Reykjavíkur og Akureyrar, en áætla má að um 500 tonn af vörum fari þar á milli á hverjum virkum degi, sem í heildina gerir ríflega 100 þús. tonn á ári. Slíkt magn er langtum meira en þekkist á öðrum helstu flutningsleiðum landsins. Hvergi á landinu, utan höfuðborgarsvæðisins, eru jafn mörg og stór framleiðslufyrirtæki og í Eyjafirði. Kostnaður þeirra við flutning framleiðsluvarnings á aðalmarkaðinn á suðvesturhorni landsins er þeim mjög íþyngjandi og léttist ekki á næstu missirum nema með styttingu vegleiða eða breyttri gjaldheimtu. Ekki er óalgengt að meðalstór framleiðslufyrirtæki á svæðinu verji um 200 millj. kr. á ári í beinan flutningskostnað, sem í reynd er herkostnaðurinn fyrir að framleiða vöru fjarri aðalmarkaðnum. Þessi kostnaður skekkir verulega samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja sem eru úti á landi og ógnar rekstrargrundvelli þeirra.
    Lagning Svínavatnsleiðar mun, auk styttri akstursleiðar og þar með minni aksturs, skemmri aksturstíma og minni losunar mengandi efna, án efa leiða til aukins umferðaröryggis, minni kostnaðar fyrir ökumenn, og minni flutningskostnaðar svo og fjölbreyttara leiðavals ökumanna. Leiðin er, af mörgum ástæðum, augljósasti styttingarmöguleikinn á þjóðleiðinni milli tveggja helstu þéttbýlisstaða landsins, og t.d. auðveldari og hagkvæmari en þverun Skagafjarðar. Sú leið styttir hringveginn um rúma 6 km og liggur um mun erfiðara svæði til vegagerðar en Svínavatnsleiðin, enda yfir jökulvötn og mikið mýrlendi að fara. Öðru máli gegnir um ásana vestan Langadals og nýtt brúarstæði yfir Blöndu á nýrri Svínavatnsleið. Á Mjósyndi við Fagranes er besta vaðið á Blöndu frá fornu fari og þar var ferjustaður um aldir. Holtastaðir hafa átt stóra landspildu handan árinnar. Ekki er vitað til þess að áin hafi nokkru sinni flætt þar upp á bakka, en eftir tilkomu Blönduvirkjunar er það enn ólíklegra en áður var.
    Stytting hringvegarins vegna Svínavatnsleiðar minnkar umferð um einn varhugaverðasta hluta þjóðvegarins. Yst í Langadal er illræmdur vegarkafli sem með tilkomu leiðarinnar verður ekki lengur til trafala á hringveginum í slæmum vetrarveðrum. Á þessu svæði milli Björnólfsstaða og Fremstagils gerir á stundum skaðræðisveður og ófærð þegar veður er mun skaplegra annars staðar og vegurinn þar hefur oft lokast vegna ófærðar, auk þess sem þar hafa orðið slys og óhöpp. Stafar þetta af því að í norðan- og norðaustanstórhríðum stendur byljóttur vindstrengur niður Langadalsfjall og þessi vegarkafli verður því líkur köflunum undir Hafnarfjalli eða Esju á Kjalarnesi hvað veðurlag varðar en að auki er oft mikil snjókoma og skafrenningur sem gerir illt verra. Með Svínavatnsleið losna menn við þennan slæma kafla.
    Þótt ríkissjóður hafi ekki yfir fjármunum að ráða til að kosta gerð þessa vegar má telja líklegt að fjármagna mætti gerð hans að mestu eða öllu leyti með lánsfé sem endurgreitt yrði með gjaldtöku af þeim sem nýta sér veginn. Kostnaður við veglagninguna er áætlaður röskir 2 milljarðar kr. og miðað við hóflegt veggjald, þó aldrei lægra en 600 kr. á hverja bifreið, án afsláttar, má búast við að framkvæmdin geti borgað sig upp á 20 árum.
    Gerð þessarar nýju þjóðleiðar yrði kærkomið verkefni fyrir verktaka nú þegar lítið er um nýframkvæmdir og má í ljósi tíðarinnar búast við afar hagstæðum tilboðum. Þess má geta að um tiltölulega mannaflsfreka framkvæmd væri að ræða.
    Ljóst má telja að fyrr eða síðar komi að því að leiðin milli Norðausturlands og höfuðborgarsvæðisins verði stytt og sjaldan hefur verið eins brýnt að ráðast í arðsamar og mannaflsfrekar framkvæmdir. Með mögulegum veggjöldum á hinni nýju leið mætti einnig gera ráð fyrir að ýmsir kysu að fara áfram um Blönduós í stað hinnar nýju leiðar, einkum þeir sem ekki væru á hraðferð og mundu hvort eð er líklega æja á Blönduósi. Vegfarendur hefðu því val um hvort þeir nýttu sér hinn nýja veg gegn gjaldi eða færu um Blönduós.
    Með þessari þingsályktunartillögu er við það miðað að í langtímaáætlun í samgöngumálum verði gert ráð fyrir gerð vegar þessa og að hann verði fjármagnaður eins og hér er lýst. Þá verði leitað samstarfs við heimamenn um sem hagfelldasta framkvæmd og hugsanlegar mótvægisaðgerðir fyrir samfélagið á Blönduósi.
    Landsbyggðarfólk segir réttilega að það sé ekki einkamál Reykvíkinga hvar flugvöllur fyrir innanlandsflug sé. Sömu rök gilda um Svínavatnsleið að breyttu breytanda, það er ekki einkamál íbúa landsbyggðarinnar hvort hringvegurinn skuli hafður 14 km lengri en hann þarf að vera.