Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 127. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Prentað upp.

Þingskjal 127  —  127. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar



um Fjarðarheiðargöng.

Flm.: Arnbjörg Sveinsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Björn Valur Gíslason, Ólöf Nordal, Birkir Jón Jónsson,
Tryggvi Þór Herbertsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að hefja nú þegar fullnaðarundirbúning að gerð Fjarðarheiðarganga. Miðað verði við að rannsóknum og undirbúningi verði lokið í tæka tíð til að hægt verði að hefja framkvæmdir í beinu framhaldi af Norðfjarðargöngum.

Greinargerð.

    Tillaga sem var efnislega samhljóða þessari var áður flutt á 136. löggjafarþingi (þskj. 799, 449. mál). Þá fylgdi henni viðamikil greinargerð um meðal annars sögulega þróun umræðu um jarðgöng til að leysa samgönguvanda Seyðisfjarðar. Þeim hluta greinargerðarinnar er sleppt hér þótt hann standi enn fyllilega fyrir sínu. Í greinargerðinni er hins vegar gerð grein fyrir nýjustu ályktunum bæjarstjórnar Seyðisfjarðar og nýjustu rannsóknum sem gerðar hafa verið.
    Vetrareinangrun Seyðisfjarðar verður ekki leyst með öðrum hætti en jarðgöngum. Í fjöldamörg ár hefur verið í athugun að leysa samgöngumál á milli Seyðisfjarðar og annara hluta Austurlands með jarðgöngum. Erfiðleikar við að halda uppi samgöngum yfir Fjarðarheiði hafa sífellt aukist. Vegurinn yfir Fjarðarheiði er í 620 m hæð og verður þar með hæsti fjallvegur til þéttbýlisstaðar þegar Norðfjarðargöngum er lokið. Auk þess er vegurinn í mikilli hæð á löngum kafla eða á um 10–15 km kafla í yfir 550 metra. Björgunarsveitir frá Seyðisfirði og Fljótsdalshéraði eru oft tímunum saman á Fjarðarheiði við að bjarga fólki niður af heiðinni í óveðrum. Á undanförnum árum hefur Vegagerðin skilgreint 20–40 daga á Fjarðarheiði sem vandræðadaga, þ.e. vegfarendur þurfa aðstoð, snjómokstur er nánast samfelldur eða vegurinn hreinlega lokaður. Þannig ástand getur og hefur varað á veginum fram á mið sumur. Við þetta bætast þeir dagar þegar skefur á heiðinni með mikilli blindu, sem verður til þess að mjög hættulegt er að ferðast um veginn.
    Mikilvægi vegarins um Fjarðarheiði felst ekki síst í því að hann er eina vegtengingin við ferjusiglingarstað út úr landinu. Ferðir Norrænu allt árið frá Seyðisfirði er eina tenging landsins við meginland Evrópu með farþegasiglingum með reglubundnum hætti. Um 40.000 farþegar fara um Seyðisfjarðarhöfn árlega. Flutningar með Norrænu eru geysimiklir. Yfir 10.000 ökutæki fara árlega með ferjunni og 20 þúsund tonna vöruflutningur, sem samsvarar 700 fulllestuðum vöruflutningabílum. Því þarf vegurinn um Fjarðarheiði að þjóna mikilli umferð ferðamanna og flutningabíla í tengslum við siglingar ferjunnar. Ekkert verður ofsagt um mikilvægi þess að slíkur vegur uppfylli ströng skilyrði varðandi öryggi vegfarenda.
    Í þessari þingsályktunartillögu er gert ráð fyrir því að undirbúningi og rannsóknum vegna Fjarðarheiðarganga verði lokið þannig að hægt sé að ráðast í gerð þeirra strax í kjölfar Norðfjarðarganganna, en undirbúningi að gerð þeirra er nú lokið. Mörgum kann að þykja tímaramminn þröngur en á það ber að líta að mikið af gögnum liggur nú fyrir vegna vinnu sem í áranna rás hefur verið lagt í m.a. af Seyðisfjarðarkaupstað, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi og Vegagerðinni. Þá ber einnig að líta á að með tilliti til sögulegrar þróunar umræðunnar um jarðgöng á Austurlandi eru Norðfjarðargöng aðeins fyrsti áfangi stærri framkvæmdar sem hefur það að markmiði að gera Austfirði og Hérað að einu atvinnu- og þjónustusvæði og gjörnýta þannig möguleika þjónustustofnana á Austurlandi. Göng undir Fjarðarheiði yrðu annar áfangi þeirrar framkvæmdar og því rökrétt framhald jarðganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.
    Það er til marks um hversu mikla áherslu Seyðfirðingar leggja á gerð Fjarðarheiðarganga að bæjarstjórnin hefur, eftir viðræður við samgönguyfirvöld, ályktað um að „Seyðfirðingar lýsa sig reiðubúna til viðræðna um að veggjöld verði liður í fjármögnun Fjarðarheiðarganga, geti það orðið til að flýta fyrir ákvörðun um gerð þeirra.“

Ályktanir bæjarstjórnar Seyðisfjarðar og Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi.
    Það er fagnaðarefni að Samtök sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hafa nú tekið af skarið og raðað Fjarðarheiðargöngum næst á eftir Norðfjarðargöngum sem nú eru tilbúin til útboðs. Kemur það fram í tillögu framkvæmdaráðs SSA um forgangsröðun verkefna innan landshlutans vegna fjárfestingaráætlunar ríkisins árið 2012 og samþykkt aðalfundar SSA 2011.
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur á undanförnu ári lagt áherslu á það í störfum sínum að kynna þá gríðarlegu þörf sem er fyrir leysa samgönguvanda Seyðisfjarðar með jarðgöngum. Það hefur meðal annars verið gert með fundum með samgönguyfirvöldum, ráðherra samgöngumála, vegamálastjóra og þingmönnum kjördæmisins. Auk þess hefur bæjarstjórnin sent frá sér ályktanir sem sprottið hafa af ýmsum tilefnum:

14. júlí 2010         Ályktun um Fjarðarheiðargöng með ítarlegum rökstuðningi.
5. ágúst 2010    Fréttatilkynning vegna umræðu um öryggismál vegamannvirkja.
3. sept. 2010    Bréf vegna endurskoðunar samgönguáætlunar, sent forsætisráðherra, samgönguráðherra, fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, þingmönnum Norðausturkjördæmis og samgöngunefnd Alþingis.
12. jan. 2011    Ályktun vegna langvarandi truflunar og lokunar Fjarðarheiðar af völdum ófærðar.
13. apríl 2011    Ályktun vegna skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um hugsanleg munnasvæði Fjarðarheiðarganga og fleiri þætti framkvæmdarinnar.

Ályktun um Fjarðarheiðargöng með ítarlegum rökstuðningi.
    Hinn 14. júlí 2010 sendi bæjarstjórn Seyðisfjarðar frá sér svohljóðandi ályktun þar sem gerð er ítarleg grein fyrir þeim rökum sem styðja við að ráðist verði í gerð Fjarðarheiðarganga:
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á samgönguyfirvöld að jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Héraðs verði í endurskoðaðri samgönguáætlun sem lögð verður fram á haustdögum. Bæjarstjórnin ítrekar þar með fyrri ályktun sína m.a. frá 17. september 2008 og margar ályktanir þar á undan um samgöngubætur milli Seyðisfjarðar og Héraðs. Ekki verður lengur unað við þær hættulegu og óásættanlegu aðstæður sem eru í samgöngumálum Seyðisfjarðar.
    Strax verður að tryggja rannsóknarfé til að ljúka undirbúningsrannsóknum vegna Fjarðarheiðarganga svo hægt verði að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar treystir því að haldið verði áfram með rannsóknirnar á þessu ári.

Greinargerð:
    Vegurinn um Fjarðarheiði er eini akvegurinn til og frá Seyðisfirði. Hann liggur í 620 metra hæð og erfiðri færð sem getur varað stóran hluta ársins. Samgöngur Seyðfirðinga eru því algjörlega orðnar sér á báti. Seyðfirðingar hafa barist fyrir Fjarðarheiðargöngum í meira en 30 ár og því löngu orðið tímabært að hlustað sé á neyðaróp okkar. Seyðfirðingar hafa sýnt mikla biðlund og skilning á nauðsyn annarra jarðganga- og vegaframkvæmda í landinu og stutt heilshugar við þær. Nú er komið að Fjarðarheiðargöngum.
    Helstu rök Seyðfirðinga fyrir Fjarðarheiðargöngum eru meðal annars:
     *      Mikil atvinnu- og skólasókn er yfir Fjarðarheiði í báðar áttir þar sem hluti bæjarbúa sækir vinnu og stundar nám daglega í nágrannabyggðarlögum.
     *      Ófærð og vandræði á Fjarðarheiðinni standa gjarnan yfir í nokkra daga í senn, dæmi eru um allt að sjö daga samfellt tímabil þar sem erfitt og ómögulegt hefur verið að komast yfir.
     *      Útköll björgunarsveitanna á Seyðisfirði og Egilsstöðum hafa aukist mjög mikið síðastliðin ár vegna erfiðrar vetrarfærðar á Fjarðarheiði.
     *      Stór hluti íbúabyggðar á Seyðisfirði er á skilgreindum ofanflóðahættusvæðum. Ef hættuástand skapaðist og/eða snjóflóð féllu eru Seyðfirðingar mjög háðir því að samgöngur um þennan eina akveg séu greiðfærar.
     *      Vetrarþjónusta á heiðinni hefur verið skert þannig að opnunartími er styttri.
     *      Margir veigra sér við því að fara yfir heiðina nema hún sé alveg greiðfær og fólk þorir ekki á heiðina vegna hálku, skafrennings og blindu. Þessar aðstæður valda því mikilli einangrun fyrir fjölda fólks.
     *      Seyðisfjörður er landamærabær og eina vegtenging bílaumferðar til og frá Evrópu liggur þar um.
     *      Heilsárssiglingar Norrönu hafa mikil áhrif á ferðaþjónusta um allt land samkvæmt rannsókn á þróun ferðaþjónustu á Íslandi. Því er mikilvægt að enn frekar sé hægt að fjölga ferðamönnum sem ekki verður gert nema með öruggum samgöngum um Fjarðarheiði.
     *      Þeir sem nýta fragtþjónustu ferjunnar verða að geta treyst á að koma farmi sínum í skip. Alltof oft hefur það gerst að farmur hefur ekki komist á tilsettum tíma vegna ófærðar. Þetta ógnar heilsárssiglingum verulega.
     *      Á Egilsstöðum er flugvöllurinn og samspil flugvallar og ferjuhafnar er mjög mikilvægt.
     *      Öruggar samgöngur frá Seyðisfirði eru nauðsynlegar til að komast í sjúkraflug og á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað þar sem fæðingardeildin er m.a. staðsett.
     *      Öruggar samgöngur við flugvöllinn á Egilsstöðum er gríðarlega mikilvægar þegar kemur að öryggi og allri sérfræðiþjónustu lækna við íbúana. Aðgengi að flugvelli er einnig mikilvægt fyrir tengingu við höfuðborgarsvæðið þar sem stærstur hluti opinberrar stjórnsýslu er staðsettur.
     *      Heilbrigði og öryggi Seyðfirðinga er ógnað vegna tíðrar ófærðar yfir heiðina.
     *      Löggæsla hefur verið verulega skert á Seyðisfirði og lögreglustöðin hefur m.a. verið lögð niður.
     *      Íbúar Seyðisfjarðar sækja verslun og opinbera þjónustu í auknum mæli til Egilsstaða.
     *      Samvinna og samstarf sveitarfélaga hefur aukist verulega, m.a. samstarf um félagsþjónustu, skólaþjónustu og málefni fatlaðra.
     *      Brunavarnir eru í samstarfi milli Héraðs og Seyðisfjarðar, sem er stórt öryggismál.
     *      Byggðaþróun hefur ekki verið nógu hagstæð. Óviðunandi samgöngur er stór þáttur í þeirri þróun. Með jarðgöngum stækkar atvinnusvæði Seyðisfjarðar og nágrannabyggðarlaga.
     *      Forsenda sameiningar sveitarfélaga eru bættar samgöngur.
Fréttatilkynning vegna umræðu um öryggismál vegamannvirkja.
    Á sumarmánuðum var ítarleg umfjöllun í fjölmiðlum um öryggismál á þjóðvegum og jarðgöngum. Af því tilefni taldi bæjarstjórnin fullt tilefni til að senda frá sér fréttatilkynningu til að minna á hinn hættulega þjóðveg yfir Fjarðarheiði 5. ágúst 2010:
     Seyðfirðingar minna á nauðsyn Fjarðarheiðarganga í ljósi umræðunnar um öryggismál vegamannvirkja:

Brýnt að leysa hættulegan veg yfir Fjarðarheiði af hólmi með jarðgöngum.
    Í ljósi fjölmiðlaumræðu síðustu daga um öryggi í Hvalfjarðargöngum minnir bæjarstjórn Seyðisfjarðar á að í nýlegri úttekt Euro RAP á íslenska vegakerfinu fær vegurinn yfir Fjarðarheiði slæma útkomu. Væru vegamót á leiðinni milli Seyðisfjarðar og Héraðs fleiri en raun ber vitni fengi vegurinn aðeins tvær stjörnur af fimm fyrir öryggi en í skýrslunni er bent á að vegurinn yfir Fjarðarheiði er mjög hár, brattir fláar á honum nánast alla leið og er leiðin eftir því hættuleg vegfarendum. Á sérstöku slysakorti Euro RAP (Risk Rate Map), sem byggt er á slysasögu með tilliti til lengdar vegar og umferðarmagns fær Fjarðarheiði aðeins eina stjörnu. Leiðin er með öðrum orðum skilgreind sem einn hættulegasti vegur landsins.

Þrýst á stjórnvöld.
    Seyðfirðingar hafa lengi bent á nauðsyn þess að ráðast í göng undir Fjarðarheiði og fyrir því eru bæði öryggissjónarmið og mörg önnur rök hvað varðar atvinnulíf, skólasókn og mannlíf almennt. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar ítrekaði í síðasta mánuði þá kröfu Seyðfirðinga að Fjarðarheiðargöng verði sett inn á samgönguáætlun stjórnvalda við endurskoðun hennar í haust. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs lýsti fullum stuðningi við þetta baráttuefni Seyðfirðinga á fundi sínum í síðustu viku.

Áratuga baráttumál.
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar minnir á að Fjarðarheiðargöng eru eini akvegurinn til og frá Seyðisfirði, vegur sem fer í rúmlega 620 metra hæð. Truflanir á vetrarsamgöngum eru tíðar, með tilheyrandi óöryggi og óþægindum fyrir íbúa Seyðisfjarðar og aðra þá sem veginn nota. Barátta fyrir göngum undir Fjarðarheiði hefur staðið í um 30 ár og er að mati Seyðfirðinga ekki ásættanlegt annað en Fjarðarheiðargöng verði sett á áætlun stjórnvalda nú í haust þannig að ekki sé vafi um að í gerð þeirra verði ráðist.

Bréf vegna endurskoðunar samgönguáætlunar.
    Í tilefni af endurskoðun samgönguáætlunar sendi bæjarstjórnin frá sér bréf til forsætisráðherra, samgönguráðherra, fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, þingmanna Norðausturkjördæmis og samgöngunefndar Alþingis, sem var svohljóðandi:

3. september 2010

Efni: Fjarðarheiðargöng – samgöngubætur fyrir Seyðisfjörð

    Seyðfirðingar hafa um áratugaskeið barist fyrir bættum vegsamgöngum með jarðgöngum undir Fjarðarheiði. Brýnt er að leysa með þeim hætti af hólmi einn af hættulegri fjallvegum landsins en vegurinn yfir Fjarðarheiði liggur í um 620 metra hæð þar sem hann er hæstur. Fjarðarheiði er mikill farartálmi að vetrum og tíðar lokanir á veginum vegna veðurs og ófærðar. Í slíkum tilfellum einangrast Seyðisfjörður, enda vegurinn um Fjarðarheiði eina vegtenging staðarins. Tryggar samgöngur eru slíkt grundvallaratriði samfélagsins að ekki verður unað við óbreytt ástand. Óásættanlegt er að Fjarðarheiðargöng sé ekki að finna í áætlun í samgöngumálum og skorar bæjarstjórn Seyðisfjarðar því á þingmenn og samgönguyfirvöld að taka tillit til óska Seyðfirðinga við endurskoðun samgönguáætlunar.

Öryggismál.
    Marga daga á hverjum vetri er vegurinn yfir Fjarðarheiði ýmist ófær eða verulegar truflanir á opnun. Dæmi eru á allra síðustu árum um slíkt samfellt ástand í sjö daga. Seyðisfjörður er skilgreint snjóflóðasvæði og verulegar líkur á að mest snjóflóðahætta sé við sömu aðstæður og þegar samgöngur eru hvað erfiðastar á Fjarðarheiði. Vegurinn yfir heiðina er einnig eina leið Seyðfirðinga að sjúkraflugi. Fjarðarheiðargöng eru því í mörgum skilningi öryggismál.

Atvinnumál.
    Hvers konar flutningar eru grunnþáttur í starfsemi fjölda fyrirtækja á Seyðisfirði. Truflanir á samgöngum á Fjarðarheiði snerta því atvinnulíf staðarins með beinum hætti. Heilsárssiglingar Norrænu eru mikið hagsmunamál Austurlands og Norðurlands en fraktþjónusta skiptir miklu fyrir framtíð siglinganna. Truflanir á Fjarðarheiði á veturna ógna þeirri framtíðarmynd.
    Atvinnusókn er yfir Fjarðarheiði í báðar áttir. Fjarðarheiðargöng treysta þannig Fljótsdalshérað og Seyðisfjörð sem eitt atvinnusvæði og því munu fylgja nýir möguleikar til atvinnusköpunar.

Þjónustusókn.
    Þjónustusókn er mikil milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs. Þar er um að ræða skólasókn vegna Menntaskólans á Egilsstöðum og háskólaseturs, sókn í heilbrigðisþjónustu, flugsamgöngur til höfuðborgarsvæðisins, sjúkraflug og ýmsa opinbera þjónustu, auk verslunar. Hér skal vakin athygli á að lögreglustöð hefur verið aflögð á Seyðisfirði og getur staðurinn því verið án löggæslu þegar truflanir eru á samgöngum yfir Fjarðarheiði.

Vegurinn til og frá Evrópu!
    Sú stefna er skýr af hálfu Austfirðinga að Seyðisfjörður verði ferjuhöfn til framtíðar, svo sem fram kemur í ályktunum frá Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi. Vegurinn yfir Fjarðarheiði er því í senn vegurinn til og frá Evrópu. Um 40.000 farþegar fara á hverju ári um höfnina og tækifæri eru til aukningar að vetri, sem gæti eflt ferðaþjónustu á Austurlandi umtalsvert. Lykill að því eru jarðgöng undir Fjarðarheiði.

Áhrif á byggðaþróun.
    Bættar samgöngur hafa áhrif á alla þætti samfélagsins, allt frá einstaklingum til opinberrar stjórnsýslu. Með göngum undir Fjarðarheiði yrðu skapaðar forsendur til margháttaðrar samvinnu á mörgum sviðum atvinnulífs og opinberrar þjónustu, íbúum til hagsbóta. Göngin yrðu þannig áhrifaþáttur í byggðaþróun á svæðinu.

Fjarðarheiðargöng njóta stuðnings.
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar mun beita sér af alefli fyrir því að göng undir Fjarðarheiði komist sem allra fyrst á dagskrá. Vakin er athygli á eftirfarandi samþykkt hennar frá því í júlí síðastliðnum og ályktun bæjarráðs Fljótsdalshéraðs um sama efni:

Ályktun bæjarstjórnar Seyðisfjarðar 14. júlí 2010:
    „Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á samgönguyfirvöld að jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Héraðs verði í endurskoðaðri samgönguáætlun sem lögð verður fram á haustdögum. Bæjarstjórnin ítrekar þar með fyrri ályktun sína frá 17. september 2008 og margar ályktanir þar á undan um samgöngubætur milli Seyðisfjarðar og Héraðs. Ekki verður lengur unað við þær hættulegu og óásættanlegu aðstæður sem eru í samgöngumálum Seyðisfjarðar.
    Strax verður að tryggja rannsóknarfé til að ljúka undirbúningsrannsóknum vegna Fjarðarheiðarganga svo hægt verði að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar treystir því að haldið verði áfram með rannsóknirnar á þessu ári.“
    Þessa ályktun studdi bæjarráð Fljótsdalshéraðs á fundi sínum 28. júlí 2010 með eftirfarandi bókun:
    „Lögð fram til kynningar og umræðu bókun bæjarstjórnar Seyðisfjarðar frá 14. júlí sl. varðandi gerð jarðganga milli Seyðisfjarðar og Héraðs.
    Bæjarráð Fljótsdalshéraðs lýsir fullum stuðningi sínum við bæjarstjórn Seyðisfjarðar í baráttu þeirra fyrir jarðgöngum sem tengja Seyðisfjörð við Hérað. Fljótsdalshérað hefur af heilum hug stutt við baráttu nágrannasveitarfélaga fyrir samgöngubótum innan fjórðungsins og mun gera það áfram.“
    Með þessu kynningarbréfi er athygli stjórnvalda vakin á þessu brýna baráttumáli Seyðfirðinga og þeim hagsmunum sem byggðarlagið á undir bættum vegsamgöngum. Það er von bæjarstjórnar Seyðisfjarðar að yfirvöld verði við óskum um að Fjarðarheiðargöng komist á samgönguáætlun og að þannig verði sett markmið sem heimamenn og stjórnvöld geti í sameiningu unnið að.

Ályktun vegna langvarandi truflunar og lokunar Fjarðarheiðar af völdum ófærðar.
    Í byrjun janúar 2011 hafði verið viðvarandi erfitt ástand á Fjarðarheiði og þá enn langur vetur framundan. Af því tilefni sendi bæjarstjórnin frá sér ályktun varðandi samgöngur á Fjarðarheiði:
    „Ályktun frá bæjarstjórn Seyðisfjarðar 12. janúar 2011
    Það ástand sem verið hefur í samgöngum við Seyðisfjörð að undanförnu undirstrikar þá kröfu Seyðfirðinga að samgönguyfirvöld setji gerð jarðganga undir Fjarðarheiði á áætlun og í framkvæmd við fyrsta tækifæri. Ekki er á neinn hallað þó fullyrt sé að ekkert byggðarlag hér á landi býr nú við jafn miklar truflanir og jafnvel einangrun að vetrarlagi og Seyðisfjörður. Tölur tala sínu máli þar um.
    Frá 10. nóvember hefur Vegagerðin aðeins skráð Fjarðarheiði greiðfæra 8 sinnum og dögum saman hefur verið snjóþekja og hálka á heiðinni - ellegar hún með öllu ófær. Á þeim 12 sólarhringum sem liðnir eru frá áramótum hefur Fjarðarheiðin verið skráð ófær alls 11 daga, að hluta eða öllu leyti. Þetta segir allt sem segja þarf um það óöryggi og truflanir á daglegu lífi Seyðfirðinga sem þessum erfiða fjallvegi fylgja. Sínu alvarlegust er sú ógn sem tíðar lokanir Fjarðarheiðar eru fyrir öryggisþjónustu á heilbrigðissviðinu og ekki þarf að fjölyrða um þá truflun sem verður á aðföngum og atvinnustarfsemi við þessar aðstæður. Það er því miður aðeins tímaspursmál hvenær sú staða kemur upp að Fjarðarheiði hindri aðgengi að hátækni heilbrigðisþjónustu og flugvelli, þegar mest liggur við.
    Bæjarstjórn brýnir fyrir Alþingi, ríkisstjórn og samgönguyfirvöldum að binda endi á áratuga bið Seyðfirðinga eftir þeirri ákvörðun að setja Fjarðarheiðargöng á dagskrá og vinna að framgangi þess máls. Við svo búið verður ekki unað öllu lengur.
    Seyðfirðingar lýsa sig reiðubúna til viðræðna um að veggjöld verði liður í fjármögnun Fjarðarheiðarganga, geti það orðið til að flýta fyrir ákvörðun um gerð þeirra.“
Ályktun vegna skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um hugsanleg munnasvæði Fjarðarheiðarganga og fleiri þætti framkvæmdarinnar.
    Að frumkvæði samgönguráðherra og vegamálastjóra var ráðist í að kanna jarðgangamunna, jarðgangaleiðir og fleiri þætti. Var verkfræðistofan Efla fengin til verksins. * Áhugaverðar niðurstöður komu fram í skýrslunni og var hún góður áfangi í því rannsóknarferli sem fram þarf að fara í undirbúningi Fjarðarheiðarganga. Af því tilefni ályktaði bæjarstjórnin þann 13. apríl 2011:

8. Ályktun frá bæjarstjórn Seyðisfjarðar um Fjarðarheiðargöng.
Skýrsla um rannsóknir á Fjarðarheiðargöngum
– bæjarstjórn þakkar skýrsluna og óskar eftir áframhaldandi rannsóknum.

Ályktun:
    „Bæjarstjórn Seyðisfjarðar fagnar nýútkominni skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um hugsanleg munnasvæði Fjarðarheiðarganga og fleiri þætti framkvæmdarinnar. Skýrslan var unnin fyrir Vegagerðina og er áfangi á þeirri löngu leið að tryggja þessa mikilvægustu framkvæmd í samgöngumálum Seyðfirðinga.
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hvetur til þess að Vegagerðin haldi áfram rannsóknum á Fjarðarheiðargöngum í samræmi við tillögur sem fram koma í skýrslunni. Næstu skref yrðu að ráðast í segulmælingar til kortlagningar á jarðlögum.
    Bæjarstjórn Seyðisfjarðar beinir því til innanríkisráðherra, samgöngunefndar Alþingis og þingmanna Norðausturkjördæmisins að beita sér fyrir því að rannsóknir og undirbúningur Fjarðarheiðarganga haldi áfram með markvissum hætti.
    Hér er ítrekuð sú afstaða Seyðfirðinga að lýsa sig reiðubúna til viðræðna um að veggjöld verði liður í fjármögnun Fjarðarheiðarganga, geti það orðið til að flýta fyrir ákvörðun um gerð þeirra.“
Neðanmálsgrein: 1
*     Fjarðarheiðargöng, Athugun á hugsanlegum munnasvæðum og fleiri þáttum, janúar 2011, Efla verkfræðistofa og Vegagerðin.