Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 185. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 189  —  185. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um heimspeki sem skyldufag í grunn- og framhaldsskóla.

Flm.: Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson,
Davíð Stefánsson, Ólína Þorvarðardóttir,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Lilja Mósesdóttir.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að endurskoða aðalnámskrár grunnskóla og framhaldsskóla með það að markmiði að heimspeki verði skyldufag á báðum skólastigum innan fjögurra ára.

Greinargerð.


    Markmið tillögurnnar er að efla kennslu í heimspeki og að kenndur verði að meðaltali einn áfangi á hverjum tveimur árum á grunnskólastigi og að meðaltali einn áfangi á hverju skólaári á framhaldsskólastigi.
    Með vísan til 8. bindis skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis Siðferði og starfshættir í tengslum við fall íslensku bankanna 2008 er lagt til að tryggt verði að heimspeki verði skyldufag í grunn og framhaldsskólum. Eins og fram kemur í skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er nauðsynlegt að efla siðfræðilega menntun allra fagstétta á Íslandi og umræðu um gildi siðareglna. Heimspeki og siðfræði ættu að vera skyldufag á öllum skólastigum og þarf að ýta undir þróun í kennslu og námsgagnagerð á því sviði. Mikilvægt er að styrkja ábyrgðarkennd nemenda gagnvart samfélaginu og stuðla jafnframt að gagnrýninni hugsun, sem er ein meginforsenda þess að borgarar geti verið virkir þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Með því að auka kennslu í heimspeki í grunn- og framhaldsskólum er lagður grundvöllur að því að styrkja skilyrði siðferðilegrar rökræðu meðal framtíðarborgara landsins á sama tíma og lýðræðislegir innviðir samfélagsins eru treystir. Þar sem um allnokkra breytingu á aðalnámskrám er að ræða er talið æskilegt að gefa ráðherra allt að fjórum árum til að innleiða breytinguna.