Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 232. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
3. uppprentun.

Þingskjal 238  —  232. mál.
Flutningsmenn.




Frumvarp til laga



um miðstöð innanlandsflugs.

Flm.: Jón Gunnarsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Árni Johnsen,
Birkir Jón Jónsson, Einar K. Guðfinnsson, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,
Gunnar Bragi Sveinsson, Illugi Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson,
Tryggvi Þór Herbertsson, Ólöf Nordal, Vigdís Hauksdóttir,
Sigmundur Ernir Rúnarsson.


1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að tryggja tilvist miðstöðvar innanlandsflugs í næsta nágrenni við helstu heilbrigðis-, mennta- og stjórnsýslustofnanir landsins.

2. gr.
Stjórnsýsla.

    Ráðherra samgöngumála fer með framkvæmd laga þessara.

3. gr.
Miðstöð innanlandsflugs.

    Miðstöð innanlandsflugs skal starfrækt á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýri í Reykjavík.
Reykjavíkurflugvöllur skal gegna hlutverki varaflugvallar fyrir innanlandsflug og millilandaflug.

4. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Markmið frumvarpsins er að treysta í sessi staðsetningu Reykjavíkurflugvallar í ljósi verulegrar þýðingar hans fyrir samgönguöryggi og stöðu og framgang innanlandsflugs.
    Brýnt er að marka stefnu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Sú óvissa sem ríkir um framtíð flugvallarins kemur sér illa fyrir hagsmunaaðila og brýnt er að henni verði eytt svo fljótt sem verða má.
    Meginhlutverk Reykjavíkurflugvallar er að vera miðstöð innanlandsflugs auk þess sem hann þjónar mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Flugvöllurinn hefur verið miðstöð innanlandsflugs í rúm 60 ár. Hann er vel staðsettur með tilliti til veðurfars og annarra þátta sem snerta flug að og frá flugvellinum og nýting hans er góð.
    Hlutverk Reykjavíkurflugvallar sem varaflugvallar fyrir innanlandsflug og millilandaflug er mjög mikilvægt og þá sérstaklega fyrir millilandaflugið.
    Varaflugvöllur í Reykjavík sparar töluvert fé við flugrekstur og hefur mikla þýðingu fyrir öryggi flugsamgangna til og frá landinu, sem og innan lands.
    Verði innanlandsflug flutt til Keflavíkurflugvallar, eins og rætt hefur verið um, er enginn varaflugvöllur á þéttbýlasta svæði landsins. Reiknað er með að við þær aðstæður yrði að gera varaflugvöll á Suðurlandi vegna öryggis í flugsamgöngum milli landa og innan lands.
    Fyrir flugfarþega er staðsetning flugvallarins í Reykjavík mjög hentug, stutt er að sækja í mennta- og stjórnsýslustofnanir og miðju borgarinnar, sem og í aðalsjúkrahús landsins. Flugvöllurinn sjálfur er nýlega endurbyggður en nýja flugstöð vantar tilfinnanlega og sumar byggingar flugrekenda eru orðnar gamlar. Úr því verður að bæta hið fyrsta, ekki síst með tilliti til mikilvægs hlutverks vallarins varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu.
    Fjölbreytt störf, mörg tengd ferðaþjónustu, flugrekstri og kennslu, fylgja starfsemi á Reykjavíkurflugvelli. Áætla má að um sé að ræða allt að 1.000 störf sem tengjast starfseminni beint og óbeint. Staðsetning vallarins í Reykjavík er því mjög mikilvæg fyrir atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu.
    Flutningur miðstöðvar innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar væri veruleg afturför í flugsamgöngum innan lands. Áhrif þess á ferðaþjónustu og tengsl landsbyggðar við höfuðborgarsvæðið eru óásættanleg.