Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 248. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 257  —  248. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um heimilissorp.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hvað líður samræmdum reglum um flokkun heimilissorps á landinu?
     2.      Hversu mörg sveitarfélög á landinu hafa tekið upp flokkun heimilissorps?
     3.      Hver er ætlaður sparnaður samfélagsins ef tekin yrði upp flokkun alls heimilissorps?