Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 356. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 432  —  356. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ráðherranefndir.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Hvaða formlegu ráðherranefndir eru starfandi? Hefur skipun þeirra verið borin upp í ríkisstjórn til samþykktar?
     2.      Eru starfandi óformlegar ráðherranefndir sem voru svo harðlega gagnrýndar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis? Ef svo er, hverjar eru þær?


Skriflegt svar óskast.