Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 537. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1096  —  537. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2010 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar,
prófanir og vottun) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhönnu B. Bjarnadóttur og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Skúla Gunnsteinsson og Gunnlaug Geirsson frá innanríkisráðuneyti. Málið var sent til umsagnar til allsherjar- og menntamálanefndar en engar athugasemdir bárust.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2010, frá 10. nóvember 2010, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB frá 23. maí 2007 um að setja á markað flugeldavörur, og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2008/43/EB frá 4. apríl 2008 um að koma á, samkvæmt tilskipun ráðsins 93/15/EBE, kerfi til að auðkenna og rekja sprengiefni til almennra nota. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 10. maí 2011. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Með tilskipun 2007/23/EB eru settar reglur sem ætlað er að tryggja frjálst flæði skotelda innan ESB og jafnframt að tryggja neytendavernd á þessu sviði. Með tilskipun 2008/43/EB er komið á fót samræmdu kerfi að því er varðar rekjanleika sprengiefna til almennra nota.
Innleiðing tilskipananna krefst lagabreytinga hér á landi. Fyrirhugað er að innanríkisráðherra muni á yfirstandandi löggjafarþingi leggja fram frumvarp til breytinga á vopnalögum, nr. 16/1998, til innleiðingar á tilskipununum. Hugsanlegar breytingar á högum þeirra sem hagsmuna eiga að gæta snúa fyrst og fremst að innflutningi sprengiefna og flugelda og mögulegri ábyrgð innflytjanda á vörunni ef hún uppfyllir ekki skilyrði tilskipananna. Þá þarf að gefa þeim aðilum sem flytja inn slík efni og vörur svigrúm til að finna birgja sem uppfylla skilyrði tilskipananna og tíma til að selja það efni og vörur sem þegar eru til og ekki uppfylla skilyrðin.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Helgi Hjörvar var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 27. mars 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form.


Árni Páll Árnason,


frsm.     

Bjarni Benediktsson.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Gunnar Bragi Sveinsson.


Mörður Árnason.


Ragnheiður E. Árnadóttir.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.