Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 776. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1289  —  776. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um skiptingu bótaflokka samkvæmt lögum
um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


    Hvernig skiptast eftirfarandi bótaflokkar samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar frá árinu 1999 til 2011:
     a.      uppbætur til reksturs bifreiðar,
     b.      uppbætur til kaupa á bifreið,
     c.      styrkur vegna bifreiðarkaupa,
     d.      styrkur vegna kaupa á sérútbúinni bifreið?
    Svar óskast sundurliðað eftir upphæðum og fjölda bótaþega.


Skriflegt svar óskast.