Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 804. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1588  —  804. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar um breytingar á gjaldskrám stofnana ráðuneytisins.


    Fyrirspurnin orðast svo:
     1.      Hvaða gjaldskrárbreytingar fyrir stofnanir ráðuneytisins hefur ráðherra staðfest á undanförnum 12 mánuðum?
     2.      Hve miklar hækkanir eða lækkanir hafa orðið á gjaldskránum við þessar breytingar?
     3.      Hvaða breytingar á gjaldskrám bíða afgreiðslu í ráðuneytinu?


    Á undanförnum 12 mánuðum hefur ráðherra staðfest gjaldskrárbreytingu fyrir Framkvæmdasýslu ríkisins. Tímagjald skrifstofufólks og sérfræðinga hækkaði um 11%, gjald fyrir ljósritun hækkaði um 29% og fyrir litprentun um 43%. Fyrri gjaldskrá var frá árinu 2010.
    Ráðherra hefur ekki staðfest aðrar gjaldskrárbreytingar hjá stofnunum ráðuneytisins á tímabilinu né bíða fleiri afgreiðslu.