Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 441. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 551  —  441. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um tekjur ríkissjóðs
af sköttum og gjöldum tengdum mengun.

Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.


     1.      Hve miklar voru tekjur ríkissjóðs af sköttum og gjöldum tengdum mengun á árunum 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hve miklar tekjur er áætlað að ríkissjóður hafi af sköttum og gjöldum tengdum mengun á árinu 2012?


Skriflegt svar óskast.