Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1054, 141. löggjafarþing 94. mál: ársreikningar (skoðunarmenn, endurskoðendur, EES-reglur o.fl.).
Lög nr. 14 6. mars 2013.
Ársreikningur skal gefa glögga mynd af afkomu, efnahag og breytingu á handbæru fé.
Ársreikningaskrá veitir heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli enda teljist hann vera starfrækslugjaldmiðill félagsins.
Starfrækslugjaldmiðill er sá gjaldmiðill sem vegur hlutfallslega mest í aðalefnahagsumhverfi félagsins. Aðalefnahagsumhverfið er þar sem félagið aðallega myndar og notar handbært fé. Við mat starfrækslugjaldmiðils skal litið til þess gjaldmiðils sem tekjur og gjöld af rekstrarhreyfingum eru ákvörðuð og greidd í enda sé það sá gjaldmiðill sem mest áhrif hefur á kostnaðarverð og söluverð vara og þjónustu félagsins, m.a. fyrir tilstilli samkeppnisafla, laga og reglna. Þá skal einnig litið til þeirra gjaldmiðla sem mestu varða við fjármögnun félagsins og varðveislu fjármuna þess.
Starfrækslugjaldmiðill skal vera skráður hjá Seðlabanka Íslands eða viðskiptabanka félagsins hér á landi.
Ráðherra getur sett reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu heimildar samkvæmt þessari grein.
Skili félag ársreikningi innan 60 daga frá tilkynningu sektarfjárhæðar er ársreikningaskrá heimilt að lækka sektarfjárhæðina um 60%.
Þingskjal 1054, 141. löggjafarþing 94. mál: ársreikningar (skoðunarmenn, endurskoðendur, EES-reglur o.fl.).
Lög nr. 14 6. mars 2013.
Lög um breytingu á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga, með síðari breytingum (starfrækslugjaldmiðill og skoðunarmenn og endurskoðendur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. laganna:- Orðin „svo og dótturfélög sem eru innifalin í samstæðureikningsskilum þeirra“ í 1. tölul. falla brott.
- Í stað orðanna „tvö ár í röð“ í 2. tölul. kemur: tvö næstliðin reikningsár.
- Í stað fjárhæðanna „230.000.000 kr.“ og „460.000.000 kr.“ í a- og b-lið 2. tölul. kemur: 300.000.000 kr.; og: 600.000.000 kr.
- Við 1. málsl. 4. tölul. bætist: sem og samlagsfélög þar sem ábyrgðaraðilar eru félög sem talin eru upp í 1.–3. tölul.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein og verður 1. mgr., svohljóðandi:
- 3. og 4. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Í stað 3. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Hafi skoðunarmaður yfirfarið ársreikninginn skal undirritun hans og dagsetning vera fylgiskjal með ársreikningi.
Ársreikningurinn skal lagður fram í samræmi við samþykktir félagsins en í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.
3. gr.
1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:Ársreikningur skal gefa glögga mynd af afkomu, efnahag og breytingu á handbæru fé.
4. gr.
Í stað orðanna „ári til árs“ í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: reikningsári til reikningsárs.5. gr.
8. gr. laganna orðast svo:Ársreikningaskrá veitir heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli enda teljist hann vera starfrækslugjaldmiðill félagsins.
Starfrækslugjaldmiðill er sá gjaldmiðill sem vegur hlutfallslega mest í aðalefnahagsumhverfi félagsins. Aðalefnahagsumhverfið er þar sem félagið aðallega myndar og notar handbært fé. Við mat starfrækslugjaldmiðils skal litið til þess gjaldmiðils sem tekjur og gjöld af rekstrarhreyfingum eru ákvörðuð og greidd í enda sé það sá gjaldmiðill sem mest áhrif hefur á kostnaðarverð og söluverð vara og þjónustu félagsins, m.a. fyrir tilstilli samkeppnisafla, laga og reglna. Þá skal einnig litið til þeirra gjaldmiðla sem mestu varða við fjármögnun félagsins og varðveislu fjármuna þess.
Starfrækslugjaldmiðill skal vera skráður hjá Seðlabanka Íslands eða viðskiptabanka félagsins hér á landi.
Ráðherra getur sett reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu heimildar samkvæmt þessari grein.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 65. gr. laganna:- Orðið „og“ í lok 4. tölul. 1. mgr. fellur brott.
- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: fjölda ársverka á reikningsári.
- 3. mgr. orðast svo:
7. gr.
Í stað orðanna „Móðurfélag skal semja samstæðureikning“ í 1. mgr. 67. gr. laganna kemur: Móðurfélag skal auk ársreiknings móðurfélags semja samstæðureikning.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 68. gr. laganna:- Í stað orðanna „á reikningsskiladegi“ í 1. mgr. kemur: í lok reikningsárs.
- Í stað fjárhæðanna „230.000.000 kr.“ og „460.000.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 300.000.000 kr.; og: 600.000.000 kr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 95. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á eftir orðunum „dótturfélögum sínum“ í 4. mgr. kemur: á liðnu reikningsári.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 96. gr. laganna:- Í stað orðanna „endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða endurskoðunarfyrirtæki.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
11. gr.
Í stað 3. málsl. 2. mgr. 97. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Óhæðisskilyrði 1. og 2. mgr. 19. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur, eiga einnig við um skoðunarmenn. Skoðunarmaður má ekki vera skuldugur félaginu né njóta ábyrgðar af hálfu þess.12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 98. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- eignir nema 200.000.000 kr.,
- rekstrartekjur nema 400.000.000 kr.,
- fjöldi ársverka á reikningsári er 50.
- Í stað orðanna „skulu kjósa a.m.k. einn endurskoðanda“ í 2. og 4. mgr. kemur: falla ekki undir 1. mgr.
- 3. mgr. orðast svo:
- 5. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 99. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Orðin „eða skoðunarmaður“ í 3. mgr. falla brott.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 101. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 102. gr. laganna:- 1. og 2. mgr. orðast svo:
- Á eftir orðinu „endurskoðun“ í 4. mgr. kemur: eða yfirferð.
- Í stað orðanna „1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 1. og 2. mgr.
- Á eftir orðinu „endurskoðunina“ í 5. mgr. kemur: eða yfirferðina.
Skoðunarmenn skulu yfirfara ársreikninginn og í því sambandi kanna bókhaldsgögn félagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu.
16. gr.
Í stað orðsins „endurskoðunarinnar“ í 1. mgr. 103. gr. laganna kemur: endurskoðunar eða yfirferðar ársreiknings.17. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 104. gr. laganna:- Orðin „eða skoðunarmenn“ í 1. mgr. falla brott.
- 2. og 3. mgr. orðast svo:
Skoðunarmenn skulu að lokinni yfirferð ársreiknings undirrita hann sem og samstæðureikning ef hann er saminn og skal undirritun skoðunarmanns ásamt dagsetningu fylgja ársreikningnum. Ef skoðunarmaður telur að ekki beri að samþykkja ársreikninginn skal hann taka það fram sérstaklega. Eins skal hann sannreyna að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög og vekja athygli á því ef svo er ekki.
18. gr.
106. gr. laganna fellur brott.19. gr.
Á eftir orðinu „áritað“ í 2. og 3. mgr. 107. gr. laganna kemur: eða undirritað.20. gr.
Fyrirsögn IX. kafla laganna verður: Endurskoðun og yfirferð ársreikninga.21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 109. gr. laganna:- Í stað orðanna „eða skoðunarmanna“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. kemur: eða undirritun skoðunarmanna.
- Orðin „eða skoðunarmanna“ í 5. málsl. 1. mgr. falla brott.
22. gr.
Í stað orðanna „eða skoðunarmanna“ í 1. mgr. 111. gr. laganna kemur: eða undirritun skoðunarmanna.23. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 116. gr. laganna:- Orðin „á reikningsskiladegi“ í 1. og 2. mgr. falla brott.
- Í stað fjárhæðanna „575.000.000 kr.“ og „1.150.000.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 862.500.000 kr.; og: 1.725.000.000 kr.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sömu stærðarmörk gilda um rekstrarreikning samstæðureiknings.
24. gr.
Í stað tilvísunarinnar „4. tölul. 1. mgr. 1. gr.“ í 2. mgr. 117. gr. laganna kemur: 2. tölul. 1. mgr. 1. gr.25. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 118. gr. laganna:- Í stað orðanna „viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands“ kemur: samstarfsnefnd háskólastigsins.
- Í stað orðanna „Verslunarráði Íslands“ kemur: Viðskiptaráði Íslands.
26. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 123. gr. laganna:- Á eftir orðinu „endurskoðun“ í 1. tölul. kemur: eða yfirferð ársreiknings.
- Á eftir orðinu „áritun“ í 3. tölul. kemur: eða undirritun.
27. gr.
Á eftir 3. mgr. 126. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Skili félag ársreikningi innan 60 daga frá tilkynningu sektarfjárhæðar er ársreikningaskrá heimilt að lækka sektarfjárhæðina um 60%.
28. gr.
Í stað ártalsins „2004“ í 2. mgr. 127. gr. laganna kemur: 2011.29. gr.
Í stað tilvísunarinnar „og 2006/46/EB“ í 128. gr. laganna kemur: 2006/46/EB og 2009/49/EB.30. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda um ársreikninga og samstæðureikninga fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2013 eða síðar. Ákvæði 27. gr. gildir þó um ársreikninga og samstæðureikninga fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2012 eða síðar.Samþykkt á Alþingi 21. febrúar 2013.