Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 173. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal   208—  173. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um gagnagrunn á heilbrigðissviði.

Frá Helga Hjörvar.


     1.      Hver á gagnagrunn á heilbrigðissviði og þær upplýsingar um Íslendinga sem þar er að finna?
     2.      Hafa verið gerðar athugasemdir við bandarísk yfirvöld um yfirlýst eignarhald fyrirtækisins Amgen á gagnagrunninum?
     3.      Með hvaða hætti er tryggt að um meðferð upplýsinga úr gagnagrunninum fari eftir íslenskum lögum?
     4.      Hefur Landspítalinn eða getur hann haft tekjur af samstarfi sínu við líftæknigeirann?