Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 252. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 463  —  252. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um millilandaflug.


Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hversu oft hafa farþegaflugvélar í millilandaflugi þurft að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli á síðustu 10 árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hvar lentu þessar flugvélar í þeim tilfellum sem lending í Keflavík var ekki möguleg? Svar óskast sundurliðað eftir árum og flugvöllum.


Skriflegt svar óskast.