Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 388. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 709 — 388. mál.
1. Hver er afstaða ráðherra til þátttöku Íslands í svonefndu fimm ríkja samstarfi þjóða á norðurskautssvæðinu? Hefur þess verið krafist að Íslandi verði veitt aðild að samstarfinu og ef svo er, hverjar hafa undirtektirnar verið?
2. Hefur Ísland verið viðurkennt sem strandríki í Norðurskautsráðinu? Ef svo er ekki, hvernig vinna þá íslensk stjórnvöld að því að tryggja Íslandi þá stöðu?
3. Hefur verið haft samráð við Ísland um vinnu sem fram fer á vettvangi fimm ríkja samstarfsins um fyrirkomulag fiskveiðistjórnar í norðurhöfum eða eftir atvikum aðra auðlindanýtingu?
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 709 — 388. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um samstarf á norðurskautssvæðinu og stöðu Íslands.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.