Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 749  —  262. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Haraldi Benediktssyni um rannsóknir akademískra starfsmanna háskóla.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er rannsóknavirkni, fjöldi rannsóknarstiga og fjöldi ritrýndra fræðigreina á hvern akademískan starfsmann við íslenska háskóla? Svar óskast sundurliðað eftir háskólum, deildum og stofnunum innan háskólanna.

    Gögnum var safnað frá einstökum háskólum til að efna í framangreinda spurningu. Allir skólar gáfu upplýsingar um fjölda akademískra starfsmanna og birtingar þannig að mögulegt er að bera skólana saman í því samhengi. Þó má benda á að skilgreining á ritrýndri grein getur verið mismunandi eftir skólum. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík sendu ítarlegri upplýsingar um birtingar, svo sem í bókum, bókatitlum og ráðstefnuritum. Benda má á að rannsóknarstig, sem eru beint tengd rannsóknarvirkni, eru aðallega notuð innan Háskóla Íslands og því ekki möguleiki á samanburði.
    Akademískur starfsmaður er fastráðinn starfsmaður með akademískt hæfi sem stundar kennslu og rannsóknir við skólann. Þetta þýðir að rannsóknarvirkni lausráðins starfsfólks og stundakennara er ekki talin með. Miðað er við einstakling ekki ársverk.
    Alls telur Háskóli Íslands að 732 akademískir starfsmenn hafi starfað við skólann árið 2012 og birt 1.064 ritrýndar tímaritsgreinar á því ári, þar af voru 78% í erlendum fagtímaritum. Birtingar á hvern akademískan starfsmann er því 1,45. Rannsóknarvirkni á ritrýndum vettvangi alls auk tímaritsgreina, þ.m.t. bækur, bókarkaflar og ráðstefnugreinar, var 2,09.
    Við Háskólann á Akureyri voru 104 akademískir starfsmenn árið 2012. Akademískir starfsmenn HA birtu 74 ritrýndar tímaritsgreinar, sem gerir 0,7 á hvern akademískan starfsmann. Heildarfjöldi birtinga, þ.m.t. bækur, bókarkaflar og ráðstefnugreinar, var 118, sem gerir 1,13 á akademískan starfsmann.
    Við Landbúnaðarháskóla Íslands starfaði 31 akademískur starfsmaður árið 2012 sem birti 17 ritrýndar tímaritsgreinar, sem þýðir 0,55 greinar á akademískan starfsmann.
    Við Háskólann í Reykjavík voru akademískir starfsmenn alls 130 árið 2012 og birtu þeir 129 ritrýndar tímaritsgreinar, eða 1,0 á hvern akademískan starfsmann. Rannsóknarvirkni á ritrýndum vettvangi alls auk tímaritsgreina, þ.m.t. bækur, bókarkaflar og ráðstefnugreinar, var 2,5.
    Við Háskólans á Bifröst birtust 5 ritrýndar greinar en akademískir starfsmenn eru 31, sem gerir 0,2 birtingar á hvern starfsmann. Háskólinn á Bifröst bendir á að þrír af þeirra starfsmönnum hafa skrifað fræðibækur 2012 og því dregur það úr fjölda ritrýndra greina.
    Við Háskólann á Hólum starfar 41 akademískur starfsmaður í 18 stöðugildum. Alls birtu þeir 13 ritrýndar tímaritsgreinar á árinu, sem gerir 0,3 birtingar á hvern einstakling.
    Við Listaháskóla Íslands starfa 62 akademískir starfsmenn sem inna af hendi 38 ársverk. Fagsvið Listaháskólans eru þess eðlis að rannsóknarvirkni hans birtist ekki nema að litlu leyti í greinum í ritrýndum tímaritum. LHÍ tekur saman upplýsingar um birtingar hjá fastráðnum akademískum starfsmönnum og árið 2012 voru þær 4, sem þýðir 0,1 birting á hvern einstakan starfsmann.

     Sundurliðaðar upplýsingar fyrir hvern háskóla.

Háskóli Íslands Ritrýndar greinar
Félagsvísindasvið 122
Heilbrigðisvísindasvið 375
Hugvísindasvið 94
Menntavísindasvið 98
Verkfræði- og náttúruvísindasvið 375
Rannsóknastofnanir HÍ 30
Samtals 1064
Fjöldi akademískra starfsmanna 732
Ársverk akademískra starfsmanna -
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 1,45

Háskólinn á Akureyri Ritrýndar greinar
Hug- og félagsvísindasvið 29
Heilbrigðisvísindasvið 16
Viðskipta- og raunvísindasvið 22
Aðrar stofnanir 7
Samtals 74
Fjöldi akademískra starfsmanna 104
Ársverk akademískra starfsmanna 91
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 0,7

Landbúnaðarháskóli Íslands Ritrýndar greinar
Auðlindadeild 10
Umhverfisdeild 7
Samtals 17
Fjöldi akademískra starfsmanna 31
Ársverk akademískra starfsmanna 31
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 0,5

Háskólinn í Reykjavík Ritrýndar greinar
Viðskiptadeild 38
Tölvunarfræðideild 15
Lagadeild 4
Tækni- og verkfræðideild 72
Samtals 129
Fjöldi akademískra starfsmanna 130
Ársverk akademískra starfsmanna 90
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 1,0

Háskólinn á Bifröst Ritrýndar greinar
Félagsvísindasvið 4
Viðskiptasvið 1
Samtals 5
Fjöldi akademískra starfsmanna 31
Ársverk akademískra starfsmanna 20
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 0,2

Háskólinn á Hólum Ritrýndar greinar
Fiskeldis- og fiskalíffræðideild 12
Hestafræðideild 1
Samtals 13
Fjöldi akademískra starfsmanna 41
Ársverk akademískra starfsmanna 17,8
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 0,3

Listaháskóli Íslands Ritrýndar greinar
Hönnunar- og arkitektúrdeild 1
Listkennsludeild 1
Tónlistardeild 2
Samtals 4
Fjöldi akademískra starfsmanna 62
Ársverk akademískra starfsmanna 38
Birtingar á hvern akademískan starfsmann 0,12