Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 463. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 809  —  463. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um gæsir og álftir.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við þeim vanda sem hlotist hefur af ágangi gæsa og álfta á ræktað land?
     2.      Telur ráðherra athugandi að breyta lögum til að koma til móts við kröfur bænda um að heimilt verði að veiða þessa fugla?