Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 382. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 923  —  382. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um byggingar á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar.


     1.      Í hve mörgum vannýttum byggingum á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar greiðir ríkið fyrir hita, rafmagn og viðhald og um hve marga fermetra er að ræða?
    Á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og austurhlaði Keflavíkurflugvallar eru samtals 76 byggingar sem teljast til varnarmannvirkja. Samanlagt er um að ræða u.þ.b. 65.577 m 2. Til viðbótar eru flughlöð, flugbrautir, eldsneytisgeymar, hafnarmannvirki og tengd kerfi.
    Af þeim byggingum eru 16 í umsjón Isavia, eitt flugskýli er leigt til Flugskóla Keilis, eitt vöruhús er í umsjón embættis ríkislögreglustjóra og hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg einnig afnot af einu vöruhúsinu. Olíudreifing ehf. er með olíubirgðastöðvarnar og tengd kerfi á leigu. Framangreindir aðilar eru ábyrgir fyrir allri notkun, rekstri og viðhaldi.
    Ríkið greiðir fyrir rekstur 58 bygginga, sem eru samanlagt um 51.991 m 2. Þær eru flestar í einhverri notkun ef frá eru taldar sex byggingar sem hafa verið aftengdar frá hita- og rafveitum og verða að öllum líkindum rifnar. Margar byggingar eru aðeins tengdar við rafveitu og því óverulegur kostnaður tengdur rekstri þeirra. Vannýtt rými er í dag metið um 12.560 m 2 og er þá fyrst og fremst um að ræða rými í byggingum sem eru að hluta í fullri notkun en hægt væri að nýta betur.

     2.      Hver er árlegur rekstrarkostnaður ríkisins við þessar byggingar?
    Áætlaður rekstrarkostnaður 2014 fyrir þær 58 byggingar sem hér um ræðir er 70.984.427 kr. Ekki liggja fyrir nákvæmar kostnaðartölur vegna rýmis sem ekki er að fullu nýtt.

     3.      Hver er staðan á rafkerfisbreytingum í umræddum byggingum? Hver hefur kostnaðurinn við breytingarnar verið og hver fjármagnaði hann? Hver er áætlaður heildarkostnaður við rafkerfisbreytingar?
    Búið er að breyta rafkerfum í 20 byggingum á öryggissvæðinu. Í desember 2013 hófst vinna við að breyta rafkerfum í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli og er síðan ráðgert að flugskýli 831 verði að hluta til breytt síðar á árinu. Almennt gildir að umfang breytinga miðast við notkun bygginga eins og hún er í dag.
    Á vestursvæðinu verður 31 byggingu ekki breytt fyrir en eftir 2017, þ.e. þær hafa verið tengdar við bráðabirgðadreifikerfi sem rekið er í samvinnu við Isavia. Ekki er á dagskrá að breyta rafkerfum í fimm til sex byggingum á öryggissvæðinu þar sem ekki er sjáanleg framtíðarnotkun eða ástand þeirra með þeim hætti að til stendur að rífa þær. Leigutakar eru ábyrgir fyrir rafkerfisbreytingum í þeim byggingum sem þeir hafa til umráða.
    Áætlaður heildarkostnaður við rafkerfisbreytingar á mannvirkjum á öryggissvæðinu, þ.e. þær breytingar sem lokið verður við fyrir árslok 2014, er 585 millj. kr., þar af er búið að framkvæma fyrir um 339 millj. kr. Verkefnið er fjármagnað með framlögum úr sjóðum Atlantshafsbandalagsins og framlögum sem Ratsjárstofnun hafði til viðhalds á mannvirkjum bandalagsins.