Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 532. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1012  —  532. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Bjarnasyni
um framkvæmd á úrskurðum kjararáðs vegna laga nr. 87/2009.


     1.      Hver var framkvæmd á úrskurðum kjararáðs dagsettum 23. febrúar 2010 vegna laga nr. 87/2009, um breytingu á lögum um kjararáð og fleiri lögum, varðandi laun og önnur starfskjör forstjóra Landspítalans (sjá kjararáð 2010.4.001 og kjararáð 2010.4.010)?
    Úrskurður kjararáðs 2010.4.010 kom til framkvæmda gagnvart forstjóra Landspítala frá og með 1. mars 2010.

     2.      Fól úrskurður í sér lækkun á launum viðkomandi og þá hve mikla í krónum og prósentum talið?
    Já, laun forstjóra Landspítala lækkuðu um 53.464 kr. sem er um 3,8% lækkun.

     3.      Aflaði stjórn lögfræðiálits um framkvæmd úrskurðarins og ef svo var, hver var niðurstaða álitsins?
    Það er ekki stjórn yfir Landspítala og er forstjóri Landspítala skipaður af ráðherra, eins og aðrir forstjórar ríkisstofnana sem heyra undir heilbrigðisráðherra. Ráðuneytið aflaði ekki lögfræðiálits um framkvæmd úrskurðarins.

     4.      Fór viðkomandi stjórn eftir niðurstöðu álitsins? Ef ekki, hvaða ástæður lágu að baki þeirri afgreiðslu?
    Vísað er til svars við 3. tölul.

     5.      Kom úrskurður kjararáðs til framkvæmda strax gagnvart viðkomandi í framhaldi af efnislegri umfjöllun stjórnar um hvernig hann skyldi framkvæmdur eða var framkvæmd frestað, t.d. vegna uppsagnarfrests eða annarra sjónarmiða, og þá í hvað langan tíma?
    Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. kom úrskurður kjararáðs strax til framkvæmda.

     6.      Ef framkvæmd var ekki frestað, kom til leiðréttinga á framkvæmdinni síðar, t.d. vegna uppsagnarfrests eða annarra sjónarmiða?
    Nei, ekki var talið að uppsagnarfrestur ætti við.

     7.      Ef framkvæmd var frestað eða framkvæmd leiðrétt eftir á, hvað munar miklu á heildarlaunagreiðslum á frestunartímabili miðað við að úrskurðurinn hefði komið til framkvæmda strax?
    Framkvæmd var ekki frestað, sbr. svör við 5. og 6. tölul.

     8.      Var viðkomandi bættur sá munur að hluta eða öllu leyti sem var á upphaflegum kjörum og þeim sem kjararáð ákvarðaði með úrskurði sínum, t.d. með eingreiðslu, hlunnindum, launuðum aukastörfum eða með öðrum hætti? Hver var sú fjárhæð eða hlunnindi?

    Kjör forstjóra voru í samræmi við úrskurð kjararáðs 2010.4.010.