Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 324. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1036 — 324. mál.
1. Hvernig hefur skattlagning á innanlandsflug þróast frá árinu 2009, sundurgreind eftir:
a. farþegasköttum,
b. lendingargjöldum,
c. leiðarflugsgjöldum,
d. kolefnisgjöldum?
2. Hver hefur verið árleg hlutfallsleg hækkun framangreindra skatta frá árinu 2009 og hversu mikið hafa þeir hækkað hlutfallslega á tímabilinu í heild?
Þróun notendagjalda og skatta í innanlandsflugi hefur verið með eftirfarandi hætti:
Farþegagjald (áður flugvallaskattur):
Flugvallaskattur á farþega var óbreyttur frá 2004 þar til hann var lagður af í maí 2011. Þá tók við farþegagjald og stendur undir hluta af þeirri þjónustu sem veitt er á flugvöllum, þ.m.t. brautarþjónustu og turnþjónustu.
Frá því að farþegagjald var lagt á árið 2011 hefur það hækkað um 141% á Reykjavíkurflugvelli en er óbreytt á aðra flugvelli landsins.
Árlega hlutfallslega hækkun má sjá í eftirfarandi töflu:
Lendingargjöld í innanlandsflugi.
Á Reykjavíkurflugvelli hafa lendingargjöld hækkað um 320% frá árinu 2009 en um 83% á öðrum innanlandsflugvöllum.

Leiðarflugsgjöld í innanlandssvæði.
Leiðarflugsgjöld voru tekin upp 1. júní 2010. Frá því að gjaldið var sett á hefur það hækkað um 68%.

ETS-gjöld (áður kolefnisgjald).
Hér er um að ræða gjöld sem lögð voru á innanlandsflug samkvæmt lögum frá 1. janúar 2010 til ársloka 2012. Kolefnisgjaldið var 2,7 kr./lítra fyrsta árið en 4,10 kr./lítra frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2012 þegar gjaldið var fellt niður. ETS-gjöld fyrir kolefnislosun tóku gildi 1. janúar 2012 og eru hluti af evrópska viðskiptakerfinu með losunarheimildir (e. Emission trading scheme).
ETS leysir af hólmi kolefnisgjaldið sem innheimt var af flugfélögum fyrir losun umfram endurgjaldslausa losunarheimild. Smærri flugvélar í innanlandsflugi bera ekki slíkt gjald en flugvélar Flugfélags Íslands greiða 50% af gjaldinu. 50% þess eru hins vegar færð af losunarkvóta Íslands.
Virðisaukaskattur.
Farþegaflutningar bera ekki virðisaukaskatt og því er hvorki innheimtur inn- né útskattur af farþegaflutningum með áætlunarflugi innan lands. Vöruflutningar eru hins vegar virðisaukaskattsskyld starfsemi.
3. Hvert er hlutfall þessarar skattheimtu af heildartekjum innanlandsflugsins?
Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um hlutfall þeirrar skattheimtu sem um er fjallað í svari við 1. tölul. af heildartekjum þar sem verð á flugmiðum er breytilegt. Samkvæmt þeim upplýsingum sem þó liggja fyrir er áætlað að sértæk skattheimta, þ.e. innheimt þjónustu- og notendagjöld, sé allt frá 6–20% af verði flugmiða almennt. Inni í því hlutfalli á eftir að reikna almenna skatta og gjöld sem fyrirtæki í innanlandsflugi greiða, svo sem skatta af eldsneyti, skatta og útsvarstekna af starfsmönnum o.fl.
Eins og fram kemur í svari við 5. tölul. stendur þó til að greina þennan þátt innanlandsflugsins nánar, þ.e. skattlagningu og innheimtu opinberra gjalda.
4. Hver hefur verið þróun farþegafjölda í innanlandsflugi á sama tímabili?
Þróun farþegafjölda í innanlandsflugi frá 2009 er sem hér segir:
5. Er ætlunin að endurskoða skattumhverfi innanlandsflugsins sérstaklega?
Ráðherra hefur ítrekað, bæði í ræðu og riti, lýst þeirri skoðun að lækka þurfi opinber gjöld, í hvers kyns formi sem þau eru, á innanlandsflug almenningi til hagsbóta. Á vegum ráðuneytisins er starfshópur að hefja störf sem mun m.a. kalla eftir upplýsingum um stöðu virðisaukaskattsgreiðslna flugfélaga á innanlandsmarkaði og um opinber gjöld á flugvélaeldsneyti. Þess má vænta að starfshópurinn skili niðurstöðu sinni til ráðherra í haust og í framhaldinu verður, í samstarfi við fjármálaráðuneytið, greint hvernig hið opinbera getur komið að því að lækka flugfargjöld innan lands.
Ljóst er að innanlandsflugi hér á landi stendur ógn af þeim hækkunum sem listaðar eru upp hér að framan. Í því samhengi er rétt að vísa í bókun Flugráðs frá því í desember 2012 þar sem segir:
„Sívaxandi hækkanir á opinberum gjöldum á innanlandsflugið eru komnar yfir þolmörk og munu óhjákvæmilega bitna á farþegum í hækkun fargjalda og samdrætti í þjónustu. Varað er við, að sjálfbærni í flugrekstri innanlands sé ógnað og samkeppnisskilyrði verulega veikt með óhóflegri gjaldtöku. Innanlandsflug er mikilvægur hluti almenningssamgangna sem gerir fólki m.a. kleift að komast með hraði á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar og að sinna erindum á einum og sama deginum. Efnahagshrun í landinu má ekki leiða til þess að rekstrarumhverfi innanlandsflugs verði varanlega skekkt sem getur síðar leitt til beinna opinberra útgjalda til þess að tryggja eðlilega þjónustu við búsetu fólksins í landinu.“
(Bókun Flugráðs frá 5. des 2012).
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1036 — 324. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Haraldi Benediktssyni
um skattlagningu á innanlandsflug.
1. Hvernig hefur skattlagning á innanlandsflug þróast frá árinu 2009, sundurgreind eftir:
a. farþegasköttum,
b. lendingargjöldum,
c. leiðarflugsgjöldum,
d. kolefnisgjöldum?
2. Hver hefur verið árleg hlutfallsleg hækkun framangreindra skatta frá árinu 2009 og hversu mikið hafa þeir hækkað hlutfallslega á tímabilinu í heild?
Þróun notendagjalda og skatta í innanlandsflugi hefur verið með eftirfarandi hætti:
Farþegagjald (áður flugvallaskattur):
Flugvallaskattur á farþega var óbreyttur frá 2004 þar til hann var lagður af í maí 2011. Þá tók við farþegagjald og stendur undir hluta af þeirri þjónustu sem veitt er á flugvöllum, þ.m.t. brautarþjónustu og turnþjónustu.
Frá því að farþegagjald var lagt á árið 2011 hefur það hækkað um 141% á Reykjavíkurflugvelli en er óbreytt á aðra flugvelli landsins.
Árlega hlutfallslega hækkun má sjá í eftirfarandi töflu:
| Farþegagjald | Frá maí 2011 | Frá apríl 2012 | Frá apríl 2013 | Hækkun frá 2011 |
| Reykjavíkurflugvöllur | ||||
| 12 ára og eldri | 498 kr. | 850 kr. | 1.200 kr. | 141% |
| 2–11 ára | 249 kr. | 425 kr. | 600 kr. | 141% |
| Aðrir innanlandsflugvellir | ||||
| 12 ára og eldri | 498 kr. | 498 kr. | 498 kr. | 0% |
| 2–11 ára | 249 kr. | 249 kr. | 249 kr. | 0% |
Lendingargjöld í innanlandsflugi.
Á Reykjavíkurflugvelli hafa lendingargjöld hækkað um 320% frá árinu 2009 en um 83% á öðrum innanlandsflugvöllum.
Árlega hlutfallslega hækkun má sjá í eftirfarandi töflu:
| Lendingargjöld |
2001 til 1. feb. 2009 |
Frá 1. feb. 2009 | Frá 1. júní 2010 |
Frá 1. apríl 2011 | Frá apríl 2012 | Frá apríl 2013 | Breyting frá 2009 |
| Reykjavíkurflugvöllur | 238 kr. | 267 kr. | 334 kr. | 436 kr. | 750 kr. | 1.000 kr. | 320% |
| Aðrir innanlandsflugvellir | 238 kr. | 267 kr. | 334 kr. | 436 kr. | 436 kr. | 436 kr. | 83% |
|
Breyting milli ára, m.v. flug báðar leiðir |
12% | 25% | 31% | 36% | 21% | 201% |
Leiðarflugsgjöld í innanlandssvæði.
Leiðarflugsgjöld voru tekin upp 1. júní 2010. Frá því að gjaldið var sett á hefur það hækkað um 68%.
Árlega hlutfallslega hækkun má sjá í eftirfarandi töflu:
| Leiðarflugsgjöld í innanlandssvæði | Frá 1. júní 2010 | Frá 1. apríl 2011 | Frá apríl 2012 | Frá apríl 2013 | Breyting frá 2010 |
| Einingaverð | 1.000 kr. | 2.500 kr. | 3.060 kr. | 1.680 kr. | 68% |
| Breyting milli ára | 250% | 22% | -45% | 68% |
ETS-gjöld (áður kolefnisgjald).
Hér er um að ræða gjöld sem lögð voru á innanlandsflug samkvæmt lögum frá 1. janúar 2010 til ársloka 2012. Kolefnisgjaldið var 2,7 kr./lítra fyrsta árið en 4,10 kr./lítra frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2012 þegar gjaldið var fellt niður. ETS-gjöld fyrir kolefnislosun tóku gildi 1. janúar 2012 og eru hluti af evrópska viðskiptakerfinu með losunarheimildir (e. Emission trading scheme).
ETS leysir af hólmi kolefnisgjaldið sem innheimt var af flugfélögum fyrir losun umfram endurgjaldslausa losunarheimild. Smærri flugvélar í innanlandsflugi bera ekki slíkt gjald en flugvélar Flugfélags Íslands greiða 50% af gjaldinu. 50% þess eru hins vegar færð af losunarkvóta Íslands.
Virðisaukaskattur.
Farþegaflutningar bera ekki virðisaukaskatt og því er hvorki innheimtur inn- né útskattur af farþegaflutningum með áætlunarflugi innan lands. Vöruflutningar eru hins vegar virðisaukaskattsskyld starfsemi.
3. Hvert er hlutfall þessarar skattheimtu af heildartekjum innanlandsflugsins?
Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um hlutfall þeirrar skattheimtu sem um er fjallað í svari við 1. tölul. af heildartekjum þar sem verð á flugmiðum er breytilegt. Samkvæmt þeim upplýsingum sem þó liggja fyrir er áætlað að sértæk skattheimta, þ.e. innheimt þjónustu- og notendagjöld, sé allt frá 6–20% af verði flugmiða almennt. Inni í því hlutfalli á eftir að reikna almenna skatta og gjöld sem fyrirtæki í innanlandsflugi greiða, svo sem skatta af eldsneyti, skatta og útsvarstekna af starfsmönnum o.fl.
Eins og fram kemur í svari við 5. tölul. stendur þó til að greina þennan þátt innanlandsflugsins nánar, þ.e. skattlagningu og innheimtu opinberra gjalda.
4. Hver hefur verið þróun farþegafjölda í innanlandsflugi á sama tímabili?
Þróun farþegafjölda í innanlandsflugi frá 2009 er sem hér segir:
| Flugvöllur | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 |
| Reykjavík | 412.098 | 401.386 | 430.316 | 410.341 | 380.770 |
| Akureyri | 190.230 | 203.337 | 211.996 | 206.536 | 183.245 |
| Egilsstaðir | 97.422 | 90.543 | 101.424 | 99.278 | 94.162 |
| Ísafjörður | 46.905 | 43.204 | 42.262 | 40.331 | 35.577 |
| Vestmannaeyjar | 76.895 | 28.511 | 20.430 | 19.242 | 17.655 |
| Hornafjörður | 10.572 | 9.888 | 10.645 | 9.271 | 9.263 |
| Sauðárkrókur | 6.871 | 5.979 | 4.732 | 62 | 1.400 |
| Bíldudalur | 3.764 | 3.602 | 3.513 | 4.180 | 3.921 |
| Grímsey | 3.389 | 3.674 | 3.256 | 3.879 | 4.223 |
| Húsavík | 26 | 384 | 42 | 6.579 | 9.893 |
| Vopnafjörður | 1.814 | 1.923 | 1.982 | 1.881 | 1.635 |
| Mývatn | 1.346 | 1.442 | 1.912 | 2.272 | 2.072 |
| Þórshöfn | 1.465 | 1.656 | 1.461 | 1.365 | 1.020 |
| Þingeyri | 1.235 | 714 | 527 | 922 | 625 |
| Gjögur | 439 | 269 | 235 | 216 | 146 |
| Norðfjörður | 26 | 48 | 33 | 50 | 56 |
| Siglufjörður | 24 | 10 | 0 | 0 | 0 |