Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 329. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Nr. 29/143.

Þingskjal 1130  —  329. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Bosníu og Hersegóvínu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Lýðveldisins Bosníu og Hersegóvínu.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd annars vegar fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Bosníu og Hersegóvínu sem undirritaður var 24. júní 2013 í Þrándheimi og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Lýðveldisins Bosníu og Hersegóvínu sem undirritaður var sama dag.

Samþykkt á Alþingi 14. maí 2014.