Ferill 50. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 50  —  50. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað á greiðslu krafna
með gjalddaga eða eindaga sem ber upp á frídag eða helgi.


Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Er viðskiptavinur krafinn um greiðslu einhvers kostnaðar eða dráttarvaxta þegar hann greiðir kröfu fyrsta virka bankadag eftir gjalddaga eða eindaga þegar gjalddaga eða eindaga kröfunnar ber upp á frídag eða helgi? Ef svo er, er sá kostnaður skuldfærður á hann og kemur hann fram þegar greitt er?
     2.      Hvernig skuldfærist greiðsla hjá banka þegar gjalddaga eða eindaga ber upp á frídag eða helgi og viðskiptavinur hefur skráð framvirka greiðslu og óskað þar eftir að krafa sé greidd á gjalddaga eða eindaga? Leggst einhver kostnaður eða dráttarvextir á fjárhæð kröfunnar ef skuldfærsla fer fram fyrsta virka bankadag?
     3.      Krefjist banki greiðslu kostnaðar og/eða dráttarvaxta í fyrrgreindum tilvikum, á grundvelli hvaða lagaheimildar er það þá gert?


Skriflegt svar óskast.