Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 435  —  345. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um veiðigjöld.


Frá Birni Val Gíslasyni.



     1.      Hefur ráðherra fyrirætlanir um enn frekari lækkun veiðigjalda og ef svo er:
              a.      hvað er áætlað að lækkunin verði mikil,
              b.      verður lækkunin mismunandi eftir fisktegundum og þá hvernig,
              c.      stendur enn til að lækka sérstaklega veiðigjald á kolmunna?
     2.      Hversu mikill afsláttur af veiðigjaldi hefur verið veittur til félags eða einstaklings með atvinnurekstur á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða II í lögum um veiðigjöld, nr. 74/ 2012, vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum:
              a.      í heild,
              b.      eftir útgerðarflokkum,
              c.      eftir félögum, skipt niður á einstök félög,
              d.      eftir einstaklingum með atvinnurekstur, skipt niður á einstaklinga?


Skriflegt svar óskast.