Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 565  —  284. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.

    Engin áform eru um að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar stofnana sem undir ráðuneytið heyra. Þó er rétt að geta þess að með nýjum lögum um embætti sýslumanna og lögreglustjóra verður embættum fækkað og þar af leiðandi mun koma til sameiningar. Annars vegar verður komið á fót aðalstöðvum og hins vegar starfsstöðvum hinna nýju embætta. Þá er unnið að aðgerðaáætlun um flutning verkefna til sýslumanna sem ætlað er að styrkja embættin.