Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 743 — 282. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn
frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.
Nei, ekki er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar neinna þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra.