Ferill 458. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 868  —  458. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Lúðvík Geirssyni
um húsnæðisbótakerfi.


     1.      Hvað líður vinnu við gerð frumvarps um sameiningu vaxtabóta og húsaleigubóta í eitt húsnæðisbótakerfi og hvenær má ætla að frumvarpið verði lagt fram til umfjöllunar og afgreiðslu?
    Vinna við frumvarp til laga um nýtt húsnæðisbótakerfi stendur yfir innan ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fram á vorþingi.

     2.      Mun boðað frumvarp byggjast á sömu eða sambærilegum tillögum og starfshópur um húsnæðisbætur setti fram í maí 2012 sem grunnútfærslu að nýju húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi?
    Frumvarp til laga um húsnæðisbætur mun byggjast í meginatriðum á tillögum verkefnastjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála frá vori 2014 sem og tillögum starfshóps um húsnæðisbætur frá maí 2012 þar sem markmiðið verður að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni heimila án tillits til fjölskyldugerðar.

     3.      Hvað breytingar eru fyrirhugaðar á tekjuskerðingarmörkum núverandi húsaleigubóta til að undirbúa og skapa grundvöll fyrir upptöku nýs húsaleigubótakerfis?
    Áfram er gert ráð fyrir tekjuskerðingarmörkum sem miðast við fjölda heimilismanna, en með tekjum verði átt við allar skattskyldar tekjur sem og skattfrjálsar tekjur vegna launa frá alþjóðastofnunum.

     4.      Hvaða tillögur og tímasetningar liggja fyrir um aðlögunarferli að upptöku húsnæðisbótakerfis sem verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála lagði til á sl. vori að yrði hafið hið fyrsta?
    Unnið hefur verið að undirbúningi breytinganna í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið og nýverið hefur jafnframt verið hafið samstarf við Samband íslenskra sveitarfélaga, enda fara sveitarfélög með framkvæmd húsaleigubótakerfisins. Gert er ráð fyrir að nýtt kerfi komi til framkvæmda í ársbyrjun 2016.