Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 933  —  545. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um rannsóknir
á loftslagsbreytingum við Norður-Atlantshaf.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Hefur verið gerð framkvæmdaáætlun um átak í loftslagsrannsóknum við Norður- Atlantshaf í samræmi við þingsályktun þess efnis nr. 8/132, sem samþykkt var á Alþingi 2. júní 2006?
     2.      Hefur verið unnið að rannsóknum á loftslagsbreytingum í samræmi við ákvæði fyrrnefndrar þingsályktunar? Ef svo er, í hverju hafa þær rannsóknir falist, hefur verið gerð grein fyrir niðurstöðum þeirra og þá hvar? Ef svo er ekki, hvaða skýringar eru á því?


Skriflegt svar óskast.