Ferill 618. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1070  —  618. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um störf stýrihóps um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Frá Ögmundi Jónassyni.


     1.      Að hvaða þáttum snúa athuganir stýrihóps um framtíð Reykjavíkurflugvallar, svokallaðrar Rögnunefndar, sérstaklega?
     2.      Hve mikið hefur starf nefndarinnar kostað til þessa og hver er áætlaður endanlegur kostnaður við starfið?
     3.      Hvernig verður farið með niðurstöður nefndarinnar?
     4.      Liggur fyrir eitthvert samkomulag um framhaldið?


Skriflegt svar óskast.