Ferill 664. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1131 — 664. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988,
með síðari breytingum (útleiga veiðiréttar og sala veiðileyfa).
Flm.: Jón Þór Ólafsson, Björt Ólafsdóttir,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Össur Skarphéðinsson.
1. gr.
Við 8. tölul. 3. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er útleiga veiðiréttar skattskyld, svo og sala veiðileyfa þegar um er að ræða fast gjald, óháð veiðifeng.2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Til ársloka 2017 skal virðisaukaskattur af útleigu veiðiréttar og sölu veiðileyfa þegar um er að ræða fast gjald, óháð veiðifeng, sbr. 8. tölul. 3. mgr. 2. gr., vera 11%.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016.Greinargerð.
Tekjurnar af sölu lax- og silungaveiðileyfa eru áætlaðir tæplega 2 milljarðar kr. Fyrstu fjögur árin sem undanþágurnar verða ekki í gildi munu skila ríkissjóði allt að 1,4 milljörðum kr. og tæpum hálfum milljarði króna á ári þar á eftir. Ekki er gert ráð fyrir að afnám skattundanþágunnar minnki skattstofninn verulega.
Fyrr á árinu áætlaði innanríkisráðuneytið í svari til spyr.is að þjóðaratkvæðagreiðsla mundi kosta rúmlega 300 millj. kr. Í svari frá skrifstofu Alþingis til vefsins kemur fram að kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs í október 2012, þ.m.t. kynningarefni, nam um 281,2 millj. kr.
Með því að fella úr gildi undanþágu virðisaukaskatts á tveggja milljarða króna skattstofni munu árlegar þjóðaratkvæðagreiðslur ekki leiða til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð.