Ferill 739. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1258  —  739. mál.




Fyrirspurn



til forseta Alþingis um fjarskiptaupplýsingar alþingismanna.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hvernig er háttað varðveislu gagna sem stafa af greiðslu Alþingis á símreikningum alþingismanna, bæði vegna heimasíma og farsíma?
     2.      Hvaða starfsmenn Alþingis hafa aðgang að símreikningum og/eða fjarskiptaupplýsingum alþingismanna?
     3.      Innihalda símreikningarnir upplýsingar um í hvaða númer alþingismaður hefur hringt, hve lengi símtöl standa og hvaða númerum hafa verið send sms-skilaboð, eða eru þessar upplýsingar með einhverjum öðrum hætti varðveittar eða aðgengilegar einhverjum starfsmönnum Alþingis?
     4.      Hve lengi eru þessi gögn varðveitt hjá þinginu og hvernig er þeim eytt?


Skriflegt svar óskast.