Ferill 720. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1287 — 720. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Páli Val Björnssyni
um greiningar á börnum með ADHD og skyldar raskanir.
1. Hversu langir eru biðlistar og biðtími eftir greiningu á ofvirkni og athyglisbresti (ADHD) og skyldum röskunum hjá börnum?
Frumgreining á ofvirkni og athyglisbresti meðal barna fer jafnan fram hjá sálfræðingum sem starfa hjá sálfræðiþjónustu skóla. Þegar úrræði sem ráðlögð hafa verið hafa ekki dugað til að koma í veg fyrir þann vanda sem er til staðar er börnum vísað til frekari greiningar í Þroska- og hegðunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (ÞHS) sem er helsti meðferðar- og greiningaraðili vegna ADHD og skyldra raskana á Íslandi þegar horft er til fjölda barna sem árlega njóta þar greiningar- og meðferðarþjónustu.
Nú eru 310 börn á biðlista hjá Þroska- og hegðunarmiðstöðinni eftir nánari greiningu á ADHD og skyldum röskunum sem eru t.d. kvíði, tilfinningavandi, hegðunarvandi og einhverfurófseinkenni.
Af þeim 310 börnum sem bíða greiningar eru 65 á forgangslista og 245 á almennum biðlista. Biðtími forgangsbarna er 5–8 mánuðir og bið barna á almennum biðlista er 11–12 mánuðir.
Tilvísanir voru 456 á árinu 2014, þar af voru 368 vegna barna á höfuðborgarsvæðinu, 12 frá Reykjanesi, 21 frá Vesturlandi, 16 frá Vestfjörðum, 3 frá Norðurlandi vestra, 21 frá Norðurlandi eystra, 3 frá Austurlandi og 12 frá Suðurlandi.
Á barna- og unglingageðdeild (BUGL) er veitt sérfræðiþjónusta vegna barna og unglinga með flókinn og samsettan geðrænan vanda og/eða alvarleg geðræn einkenni. Mörg börn sem eru í þjónustu á BUGL eru með ADHD-greiningu en þá er yfirleitt um að ræða flóknari mynd þar sem fleiri greiningar koma við sögu og vandinn telst orðinn margþættur. Tilvísanir vegna barna með samsettan vanda (þ.m.t. ADHD og fylgiraskanir) og íþyngjandi geðræn einkenni eru metnar með tilliti til biðtíma og börn með alvarlegustu einkennin komast fyrr í þjónustu. Meðalbiðtími er um eitt ár. Ef grunur er um alvarlegan vanda, svo sem sjálfsvígshættu eða geðrofseinkenni, fær barnið þjónustu samdægurs.
Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er börnum vísað ef þau glíma einnig við þroskaraskanir, einhverfurófsraskanir eða hreyfihamlanir.
2. Hvað hafa íslensk stjórnvöld gert til að auka afkastagetu meðferðar- og greiningarstöðva, sbr. ábendingu í úttekt barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2011 varðandi greiningar á börnum með ADHD og skyldar raskanir?
Eins og fram kemur í svari velferðarráðherra við fyrirspurn á 140. löggjafarþingi 2011– 2012 (521. mál) hefur orðið mikil þróun í skimun, greiningu og meðferð vegna ADHD og skyldra raskana og þekking eykst stöðugt. Klínískar leiðbeiningar landlæknis vegna ADHD, Vinnulag við greiningu og meðferð athyglisbrests með ofvirkni (ADHD), voru gefnar út í lok árs 2007 en á árinu 2012 gaf embætti landlæknis út endurskoðaðar leiðbeiningar í skýrslu undir sama heiti. Skýrslan er sambland klínískra leiðbeininga og verklagsreglna og ætluð fagfólki sem vinnur við athugun, greiningu og meðferð á ADHD en jafnframt er bent á að aðrir geti haft gagn af leiðbeiningunum, svo sem einstaklingar með ADHD, fjölskyldur þeirra og starfsfólk skóla, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
Einni stöðu sálfræðings var bætt við tímabundið á ÞHS á árinu 2014 og gert er ráð fyrir að sú staða verði framlengd.
Í fjárlögum 2013 var samþykkt 50 millj. kr. viðbótarframlag á fjárlagalið 08-399-1.69 til að standa undir aðgerðaáætlun í þágu barna með ADHD-röskun. Einnig er á fjárlagalið 08- 399-1.98 gert ráð fyrir að 25 millj. kr. geti nýst í þjónustu við börn með ADHD og skyldar raskanir. Samningaviðræður milli Landspítala og SÍ um þjónustu ADHD-teymis á Landspítala eru vel á veg komnar. Í ADHD-teyminu eru hæfustu sérfræðingar spítalans á sviði meðferða við ADHD. Teymið mun annast greiningu, stuðning og meðferð vegna ADHD. Á grundvelli samningsins verður boðið upp á lyfjameðferð og hugræna atferlismeðferð.
Í drögum að geðheilbrigðisstefnu er gert ráð fyrir aðgerðum sem miða að því að styrkja börn sem glíma við geðrænan vanda og fjölskyldur þeirra. Meðal annars er lögð áhersla á að fjölga þurfi sálfræðingum í heilsugæslu og auka stuðning við foreldra í uppeldishlutverki þeirra. Sams konar áherslur er að finna í drögum að fjölskyldustefnu.