Ferill 783. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
Þingskjal 1393 — 783. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016–2019.
(Lögð fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi 2014–2015.)
Alþingi ályktar, sbr. lög um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, að árin 2016–2019 skuli unnið að þróunarsamvinnu Íslands í samræmi við eftirfarandi áætlun.
Alþjóðleg þróunarsamvinna verði ein af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu og leitast verði við að tryggja innbyrðis samræmi í stefnunni með tilliti til hnattrænna, efnahags-, umhverfis- og öryggismála. Íslensk stjórnvöld taki þátt í baráttu alþjóðasamfélagsins gegn fátækt og fyrir friði og betri lífskjörum á heimsvísu. Framtíðarsýnin sé sjálfbær og réttlát veröld þar sem mannréttindi eru virt í hvívetna og allar manneskjur hafi tækifæri og getu til að uppfylla réttindi sín og þarfir. Í þeirri veröld heyri ójöfnuður, hungur og sárafátækt sögunni til. Aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum verði helsti grundvöllur þróunarsamvinnu Íslands og markmið um sjálfbæra þróun varði veginn.
Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands endurspegli þannig þau gildi sem íslenskt samfélag hefur í heiðri, virðingu fyrir mannréttindum og lýðræði, fjölbreytni mannlífs, umburðarlyndi og réttlæti. Ábyrgð, árangur og áreiðanleiki verði hafður að leiðarljósi í öllu starfi Íslands á þessu sviði.
I. Framlög.
Í ljósi framangreindra gilda um ábyrgð og áreiðanleika styðji íslensk stjórnvöld markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki skuli veita sem nemur 0,7% af vergum þjóðartekjum (VÞT) til þróunarsamvinnu. Áhersla verði lögð á að framlögin séu vel nýtt og að sýnt verði fram á árangur af starfi Íslands (sjá IV. kafla). Þar sem Ísland er aðili að þróunarsamvinnunefnd OECD (DAC) verði stefnt að því að framlög Íslands nái a.m.k. meðaltali DAC-ríkja á gildistíma þessarar áætlunar og hækki þannig úr 0,23%–0,30% af VÞT á tímabilinu 2016– 2019. Til að ná þessu markmiði verði miðað við tímasetta áætlun sem hér segir:
| Hlutfall af VÞT (%) | |
| 2016 | 0,23 |
| 2017 | 0,25 |
| 2018 | 0,27 |
| 2019 | 0,30 |
Með hliðsjón af þessari stefnu og hagspá um VÞT frá nóvember 2014 fari framlög þannig stighækkandi og nemi mögulega um 5 milljörðum kr. árið 2016, 5,8 milljörðum kr. árið 2017, 6,6 milljörðum kr. árið 2018 og 7,8 milljörðum kr. árið 2019.
i. Skipting framlaga eftir framkvæmdaleiðum.
Á gildistíma áætlunarinnar verði stefnt að því að framlög til tvíhliða þróunarsamvinnu í samstarfslöndum Íslands og á vegum fjölþjóðastofnana nemi um á bilinu 70–72% af heildarframlögum til málaflokksins. Þá verði áfram unnið í samstarfslöndum Íslands og í svæðasamstarfi á grundvelli skuldbindandi samninga með álíka hætti og fyrr hvað varðar hlutfall af heildarframlögum. Hvað fjölþjóðastofnanir varðar er hér mörkuð sú stefna að um 20% af heildarframlögum Íslands til þróunarsamvinnu renni til fjölþjóðastofnana í formi kjarnaframlaga. Annað samstarf við fjölþjóðastofnanir nemi því sem eftir stendur. Þá verði stefnt að því að 75% af heildarframlögum Íslands til fjölþjóðastofnana renni til fjögurra áherslustofnana Íslands, UN Women, UNICEF, Alþjóðabankans og Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en hlutfallið hefur verið í kringum 65% á undanförnum árum. Að lokum verði stefnt að því að stuðningur við borgarasamtök verði á bilinu 8–10%.
ii. Skipting framlaga á grundvelli stefnumiða.
Stefnt verði að því að framlög til uppbyggingar félagslegra innviða annars vegar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda hins vegar nemi hvort um sig 25–30% af heildarframlögum til þróunarsamvinnu. Þá verði stefnt að því að framlög til starfs í þágu friðar nemi að jafnaði um 5–7% af heildarframlögum á gildistíma áætlunarinnar og að framlög til mannúðaraðstoðar fari stigvaxandi á tímabilinu og nemi um 7–9%. Kjarnaframlög verði 20% eins og áður segir.
II. Áherslur og markmið.
Jafnrétti og sjálfbærni verði leiðarljós í þróunarsamvinnu Íslands. Íslensk stjórnvöld leggi sitt af mörkum til þess að aukin hagsæld samfélaga skili sér til þeirra fátækustu og leiði til jafnaðar. Þá verði lögð áhersla á að stuðla að friði á alþjóðavettvangi og gæta hans. Enn fremur verði hugað að því að saman fari íslensk þekking og þarfir fátækustu ríkjanna, á þeirra eigin forsendum.
Í þróunarsamvinnu Íslands verði unnið að einu yfirmarkmiði og þremur meginmarkmiðum á sviði uppbyggingar félagslegra innviða, sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda og mannúðaraðstoðar og starfs í þágu friðar. Allt starf stjórnvalda á þessu sviði byggist á tillögum að sjálfbærum þróunarmarkmiðum sem taka gildi haustið 2015.
Yfirmarkmið Íslands verði:
Að draga úr fátækt og stuðla að almennri velferð á grundvelli jafnréttis og sjálfbærrar þróunar.
Megin- og undirmarkmið Íslands á sviði uppbyggingar félagslegra innviða verði:
1. Að bæta lífsskilyrði og auka tækifæri fátæks fólks með sterkari félagslegum innviðum.
1.1. Bætt aðgengi að grunnmenntun og minna brottfall úr skólum.
1.2. Bætt gæði menntunar og betri námsárangur.
1.3. Dregið úr mæðra- og barnadauða.
1.4. Aukið aðgengi að öruggu neysluvatni og bættar hreinlætisvenjur.
1.5. Aukið kynjajafnrétti og valdefling kvenna.
Megin- og undirmarkmið Íslands á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda verði:
2. Að bæta fæðuöryggi og örva hagþróun á grundvelli jafnaðar og sjálfbærrar auðlindanýtingar.
2.1. Aukin nýting jarðhita í þróunarríkjum.
2.2. Bætt fæðuöryggi með auknu framboði ferskvatns- og sjávarafurða.
2.3. Bætt afkoma og fjölgun atvinnutækifæra fyrir konur og karla í fiskimannabyggðum.
2.4. Aukin geta þróunarríkja til að takast á við og sporna við landeyðingu.
2.5. Aukin geta þróunarríkja til að takast á við og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
Megin- og undirmarkmið Íslands á sviði mannúðaraðstoðar og starfs í þágu friðar verði:
3. Að auka viðnámsþrótt samfélaga og flýta endurreisn með mannúðaraðstoð og starfi í þágu friðar.
3.1. Árangursríkari mannúðaraðstoð sem mætir þörfum nauðstaddra.
3.2. Sterkari innviðir, aukið lýðræði og kynjajafnrétti í stríðshrjáðum og/eða óstöðugum ríkjum.
i. Uppbygging félagslegra innviða.
Íslensk stjórnvöld stuðli að uppbyggingu félagslegra innviða með úrbótum í menntun barna, heilsufars-, vatns- og hreinlætismálum og styrkingu sveitarstjórna til að veita íbúum framangreinda þjónustu. Þá verði unnið að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna með samþættingu og sértækum aðgerðum.
Hvað menntun áhrærir verði lögð áhersla á bætt gæði og aðgengi að grunnmenntun í fátækum samfélögum og sjónum sérstaklega beint að unglingsstúlkum. Unnið verði að því að bæta aðgengi að grunnmenntun og minnka brottfall úr skólum, svo sem með uppbyggingu skólahúsnæðis, námsgögnum, þjálfun starfsfólks og öryggi og velferð nemenda, m.a. með tilliti til vatns- og salernismála og skólamáltíða. Íslensk stjórnvöld styðji einnig við starfsþjálfun og hæfnisuppbyggingu í tengslum við áherslusvið Íslands, svo sem á sviði fiski-, jafnréttis-, jarðhita- og landgræðslumála.
Þá leggi íslensk stjórnvöld sérstaka áherslu á að auka aðgengi að heilsugæslu þar sem heilsa og næring mæðra og barna er í forgangi og stuðlað verði að bættu kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindum. Jafnframt verði unnið að bættum hollustuháttum með því að auka aðgengi að vatni, salernisaðstöðu og fræðslu um hreinlætismál.
Í þróunarsamvinnu Íslands verði jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna bæði þverlægt og sértækt markmið. Í starfi íslenskra stjórnvalda verði lögð áhersla á verkefni sem ætlað er að stuðla að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, auknum möguleikum þeirra til tekjuöflunar og afnámi kynbundins og kynferðislegs ofbeldis. Þá verði einnig unnið að því að auka færni og getu stofnana, borgarasamtaka og sérfræðinga í þróunarríkjum til að vinna að framgangi jafnréttismála.
Þar sem jafnréttismál eru skilgreind sem þverlægt áhersluatriði verði að þeim hugað í öllu starfi íslenskra stjórnvalda á þessu sviði. Fylgt verði jafnréttisstefnu í þróunarsamvinnu og í vöktun og úttektum verði þess gætt að jafnréttismál fái vandaða umfjöllun.
ii. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda.
Íslensk stjórnvöld stuðli að því að bæta fæðuöryggi og örva hagþróun á grundvelli jafnaðar og sjálfbærrar auðlindanýtingar. Lögð verði áhersla á jarðhita, fiskimál og landgræðslu auk þess sem sjónum verði beint að umhverfis- og loftslagsmálum.
Stutt verði við þekkingaröflun og uppbyggingu þróunarlanda til undirbúnings jarðhitanýtingar þar sem þess er kostur og þar með takmörkuð áhrif aukinnar orkuframleiðslu á losun gróðurhúsalofttegunda. Í samstarfi við fjölþjóðastofnanir beiti íslensk stjórnvöld sér fyrir auknum fjárfestingum í jarðhitaþróun, vinni að því að auka færni í jarðhitamálum og hugi að jafnréttissjónarmiðum á þessu sviði. Auk þess verði unnið að því að efla almenna þekkingu á jarðhita og eiginleikum hans til orkuframleiðslu og annarrar nýtingar.
Íslensk stjórnvöld stuðli að bættri afkomu og fæðuöryggi í fiskimannasamfélögum, m.a. með stuðningi við fiskeldi, aukin gæði afla og meðfylgjandi verðmætaaukningu auk þess sem stutt verði við uppbyggingu þekkingar og færni á þessu sviði. Áhersla verði lögð á að veita konum aukin tækifæri til tekjuöflunar og þátttöku í virðiskeðjunni.
Þróunarlöndum verði veitt aðstoð við að takast á við ýmiss konar hnignun landgæða, svo sem jarðvegseyðingu, eyðimerkurmyndun og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga, með áherslu á uppbyggingu þekkingar og færni á sviði sjálfbærrar nýtingar lands og endurheimt landgæða.
Í starfi íslenskra stjórnvalda verði enn fremur lögð áhersla á að verkefni séu unnin í sem bestri sátt við umhverfið og ekki sé gengið á tækifæri og umhverfisgæði komandi kynslóða. Stutt verði við aðgerðir alþjóðasamfélagsins í baráttunni gegn áhrifum loftslagsbreytinga og rík áhersla lögð á þátttöku kvenna og jafnréttissjónarmið í loftslagstengdum verkefnum.
Þar sem umhverfismál eru skilgreind sem þverlægt áhersluatriði verði að þeim hugað í öllu starfi íslenskra stjórnvalda á sviði þróunarsamvinnu. Fylgt verði umhverfisstefnu í þróunarsamvinnu og í vöktun og úttektum verði þess gætt að umhverfismál fái vandaða umfjöllun.
iii. Mannúðaraðstoð og starf í þágu friðar.
Lögð verði áhersla á forystuhlutverk Sameinuðu þjóðanna við samhæfingu aðgerða á vettvangi og mikilvægi borgarasamtaka sem koma að mannúðaraðstoð. Störf Íslands á þessu sviði verði unnin í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga og alþjóða- og mannúðarlög. Þá verði lögð áhersla á að bregðast skjótt við með fjárframlögum eða mannafla í neyðartilvikum og unnið samkvæmt alþjóðlegu samkomulagi um góða starfshætti í mannúðaraðstoð.
Íslensk stjórnvöld styðji uppbyggingar- og endurreisnarstarf í samvinnu við fjölþjóðastofnanir og lýðræðisuppbyggingu í ríkjum þar sem hún er skammt á veg komin. Sérstök áhersla verði lögð á kynjajafnrétti og þátt kvenna í friðaruppbyggingu og áætlun Íslands um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.
III. Framkvæmd.
Íslensk stjórnvöld beini stuðningi sínum í gegnum tvíhliða samvinnu við valin samstarfslönd og svæðaverkefni, fjölþjóðastofnanir og verkefni á þeirra vegum og borgarasamtök. Áhersla verði lögð á að efla samlegðaráhrif tvíhliða og fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu og að tryggja eignarhald heimamanna til að festa framfarir í sessi.
i. Lönd og svæðasamstarf.
Tvíhliða samstarfslönd og svæðasamstarf.
Unnið verði samkvæmt fyrirliggjandi samstarfsáætlunum við tvíhliða samstarfslönd Íslands: Malaví, Mósambík og Úganda.
Í Malaví og Úganda verði áfram unnið í samstarfi við héraðsstjórnir, en í Mósambík verði unnið með stjórnvöldum og fjölþjóðastofnunum. Í tvíhliða samstarfslöndum Íslands verði stutt við uppbyggingu félagslegra innviða og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þar sem samþætting jafnréttis- og umhverfissjónarmiða verði höfð að leiðarljósi. Í ljósi nýrra þróunarmarkmiða verði aukin áhersla lögð á fæðuöryggi og baráttu gegn hungri og fyrir betri næringu. Til að tryggja skilvirka grunnþjónustu við fátækt fólk verði áfram lögð áhersla á stuðning við uppbyggingu í stjórnsýslu, einkum á lægri stjórnsýslustigum.
Unnin verði tillaga um mögulega breytingu á samstarfslöndum í samræmi við niðurstöður greiningar þar að lútandi.
Áfram verði unnið að þematískum svæðaverkefnum sem ná til margra landa. Jarðhitaverkefni Íslands og Alþjóðabankans og fleiri fjölþjóðastofnana, m.a. Norræna þróunarsjóðsins (NDF), sem veitir stuðning til allt að þrettán landa í austanverðri Afríku, verði áfram haldið næstu ár. Stefnt verði að frekari útfærslu og útvíkkun svæðasamstarfs í samfjármögnun með alþjóðlegum stofnunum og verði þar einkum lögð áhersla á náttúruauðlindir og jafnréttismál.
Önnur áherslulönd.
Í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu verði áfram lögð áhersla á stuðning við uppbyggingu í Afganistan og Palestínu þar sem mikil þörf er á efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu. Þar sem íslensk stjórnvöld hafa ekki fasta viðveru í löndunum tveimur verði aðstoðin veitt í samstarfi við fjölþjóðastofnanir og borgarasamtök sem þar starfa. Lögð verði áhersla á uppbyggingu félagslegra innviða, endurreisn og gott stjórnarfar.
Fyrrgreint útiloki þó ekki að sinnt verði verkefnum gagnvart öðrum ríkjum.
ii. Fjölþjóðleg samvinna.
Sérstök áhersla verði lögð á störf fjögurra fjölþjóðastofnana sem starfa á áherslusviðum Íslands í þróunarsamvinnu: Alþjóðabankann, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) og Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ), en á Íslandi starfa fjórir skólar undir hatti HSÞ: Jafnréttisskólinn, Jarðhitaskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn.
Áhersla verði lögð á að efla samlegðaráhrif tvíhliða og fjölþjóðlegrar samvinnu og tvíhliða samstarfslönd Íslands verði sérstaklega höfð í huga þegar teknar eru ákvarðanir um verkefni.
Á sviði mannúðaraðstoðar verði lögð áhersla á stuðning og samstarf við þær stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem gegna lykilhlutverki í mannúðaraðstoð og neyðarviðbrögðum, svo sem Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF), Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og UNICEF. Þá verði stutt við Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC).
Íslensk stjórnvöld veiti stuðning í formi kjarnaframlaga, sem renni án skilyrða til starfseminnar, eyrnamerktra framlaga sem séu ýmist bundin skilyrðum um stuðning við ákveðinn málaflokk eða ríki, og starfa útsendra sérfræðinga á vettvangi. Fyrrgreint útiloki þó ekki samstarf við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna.
iii. Borgarasamtök.
Áfram verði veitt framlög til verkefna á vegum borgarasamtaka á sviði þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar. Unnið verði samkvæmt stefnumiðum og verklagsreglum um samstarf við borgarasamtök á Íslandi. Verkefni borgarasamtaka skuli, eins og önnur verkefni íslenskra stjórnvalda, hafa kynjajafnrétti og sjálfbærni umhverfis að leiðarljósi.
iv. Atvinnulífið og einkageirinn.
Niðurstöður greiningar á möguleikum íslenskra aðila að uppbyggingu í þróunarlöndum verði kynntar íslenskum aðilum.
v. Kynning og fræðsla.
Íslensk stjórnvöld leggi áherslu á upplýsingagjöf, kynningu og fræðslu um alþjóðlega þróunarsamvinnu, þar á meðal eflingu fræðslu á öllum skólastigum í samstarfi við fræðsluyfirvöld og borgarasamtök.
Samstarf við Félag Sameinuðu þjóðanna, landsnefnd UN Women og landsnefnd UNICEF á Íslandi verði áfram mikilvægur þáttur í að stuðla að aukinni þekkingu meðal almennings um málaflokkinn. Þá verði jafnframt unnið að samstarfi við önnur borgarasamtök í því skyni.
Íslensk stjórnvöld leggi áherslu á eflingu samstarfs við háskólasamfélagið og verði stuðst við áherslur þar að lútandi sem mótaðar hafa verið.
IV. Skilvirkni og árangur.
Virk þátttaka á vettvangi DAC verði áfram mikilvægur liður í starfi Íslands á þessu sviði. Unnið verði markvisst að því að sem bestur árangur náist af þróunarstarfi og að það nái settum markmiðum.
Íslensk stjórnvöld standi skil á gæðum og árangri þróunarstarfsins. Árangur, skilvirkni, vönduð og fagleg vinnubrögð verði þannig lykilatriði við ákvarðanatöku um hvernig fjárveitingum til þróunarsamvinnu sé háttað.
Reglulegt mat og úttektir á starfsemi allra þeirra aðila sem framkvæma þróunarverkefni með tilstyrk Íslands verði forsenda slíkra ákvarðana og lögð verði áhersla á að slíkt sé gert með kerfisbundnum hætti. Gildir þar einu hvort um er að ræða samstarf við borgarasamtök, framlög til fjölþjóðastofnana og verkefna á þeirra vegum, eða vegna tvíhliða verkefna.
Árangurseftirlit með framkvæmd þróunarsamvinnu Íslands taki mið af bestu starfsvenjum og viðmiðum á alþjóðavísu. Auk þess verði miðlun upplýsinga og niðurstaðna til allra haghafa og hagsmunaaðila mikilvægur þáttur í ferlinu.
V. Yfirlit yfir aðgerðir og verkefni.
Íslensk stjórnvöld stefni að því að ná markmiðum áætlunarinnar m.a. með eftirfarandi aðgerðum og verkefnum, en í hverju tilfelli fyrir sig liggi að baki ítarlegur árangursrammi.
Meginmarkmið 1: Að bæta lífsskilyrði og auka tækifæri fólks
með sterkari félagslegum innviðum.
| Undirmarkmið | Væntanlegur árangur | Aðgerðir/verkefni | |
| 1.1 Bætt aðgengi að grunnmenntun og minna brottfall úr skólum | 1.1.1 Bætt náms- og kennsluaðstaða, jafnara aðgengi og minna brottfall stúlkna í ákveðnum skólum í Mangochi-héraði. 1.1.2 Jafnt aðgengi að grunnmenntun í Kalangala-héraði. 1.1.3 Bætt aðstaða í skólum og skólasókn í Buikwe-héraði. |
– Grunnþjónusta í Mangochi-héraði, Malaví: menntaverkefni. – Byggðaþróun í Kalangala-héraði, Úganda: menntaverkefni. – Byggðaþróun í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði, Úganda: menntaverkefni (í undirbúningi). – Staða ungs sérfræðings (JPO) á sviði menntamála hjá UNICEF í Malaví. |
Kjarnaframlög til fjölþjóðastofnana (Alþjóðabankinn, UN Women, UNICEF, UNDP). Verkefni á vegum borgarasamtaka.
|
| 1.2 Bætt gæði menntunar og betri námsárangur | 1.2.1 Bætt gæði menntunar í tólf skólum til að minnka brottfall nemenda og endurtekningar, og stuðla að árangursríku námi í Mangochi-héraði. 1.2.2 Bætt gæði grunnmenntunar í Kalangala- héraði. 1.2.3 Aukin gæði grunnmenntunar og bættur námsárangur í Buikwe-héraði. 1.2.4 Árangursmarkmið úr verkefni á vegum UNICEF. |
– Grunnþjónusta í Mangochi-héraði: menntaverkefni. – Byggðaþróun í Kalangala-héraði: menntaverkefni. – Byggðaþróun í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði: menntaverkefni (í undirbúningi). – Stuðningur við verkefni UNICEF. |
|
| 1.3 Dregið úr mæðra- og barnadauða | 1.3.1 Aukið framboð, aðgengi og notkun á öflugri og góðri heilsugæslu í Mangochi-héraði. 1.3.2 Aukið framboð, aðgengi og notkun á góðri heilsugæslu í Buikwe-héraði. 1.3.3 Bætt mæðra- og barnavernd í Mangochi- héraði. 1.3.4 Bætt mæðra- og barnavernd í Buikwe- héraði. 1.3.5 Bætt mæðra- og ungbarnavernd á Gaza. 1.3.6 Aukin geta stjórnvalda í þróunarríkjum til að koma í veg fyrir og meðhöndla fæðingafistil. |
– Grunnþjónusta Mangochi-héraði: lýðheilsuverkefni. – Byggðaþróun í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði: heilbrigðisverkefni (í undirbúningi). – Stuðningur við verkefni UNICEF um bætta mæðra- og ungbarnavernd á Gaza, Palestínu. – Stuðningur við verkefni UNFPA um afnám fæðingafistils. |
|
| 1.4 Aukið aðgengi að öruggu neysluvatni og bættar hreinlætisvenjur | 1.4.1 Aukið aðgengi og notkun á öruggu neysluvatni og bættar hreinlætisvenjur í Mangochi-héraði. 1.4.2 Úrbætur í vatns- og hreinlætismálum fækka sýkingum af völdum mengaðs drykkjarvatns í Buikwe-héraði. 1.4.3 Úrbætur í vatns- og salernismálum ná til barna, og stuðla að betri heilsu, menntun og högum fólks í fimm dreifbýlishéruðum og fjörutíu skólum í Zambesíu- fylki. |
– Grunnþjónusta í Mangochi-héraði: Vatns-, salernis- og hreinlætisverkefni. – Grunnþjónusta í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði: vatns-, salernis- og hreinlætisverkefni (í undirbúningi). – Stuðningur við verkefni UNICEF á sviði vatns-, salernis- og hreinlætismála í Zambesíu-fylki, Mósambík. |
| Undirmarkmið | Væntanlegur árangur | Aðgerðir/verkefni | |
| 1.5 Aukið kynjajafnrétti og valdefling kvenna | 1.5.1 Verkefni sem íslensk stjórnvöld styðja stuðla að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. 1.5.2 Aukin geta stofnana og sérfræðinga í þróunarríkjum til að vinna að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna. 1.5.3 Fleiri konur og stúlkur lifa lífi án ofbeldis. 1.5.4 Algert afnám limlestinga á kynfærum kvenna og stúlkna innan komandi kynslóðar í samræmi við ályktun allsherjarþingsins nr. 67/146. 1.5.5 Árangursmarkmið úr verkefni UN Women. |
– Framfylgja jafnréttisstefnu og verklagsreglum um framkvæmd hennar. – Framlög til jafnréttisverkefnis og mannréttindasjóðs Alþjóðabankans. – Starfsemi Jafnréttisskóla HSÞ á Íslandi. – Stuðningur við sjóð SÞ um afnám ofbeldis gegn konum. – Stuðningur við WCLAC. – Stuðningur við samstarfsverkefni UNICEF og UNFPA um afnám limlestinga á kynfærum kenna og stúlkna í 17 löndum í Afríku sunnan Sahara. – Stuðningur við verkefni UN Women. |
Meginmarkmið 2: Að bæta fæðuöryggi og örva hagþróun á grundvelli
jafnaðar og sjálfbærrar auðlindanýtingar.
| Undirmarkmið | Væntanlegur árangur | Aðgerðir/verkefni | |
| 2.1 Aukin nýting jarðhita í þróunarríkjum | 2.1.1 Aukin þekking á jarðhita og geta til að vinna að framgangi jarðhitanýtingar í sigdalnum í Austur-Afríku. 2.1.2 Auknar alþjóðlegar fjárfestingar í tilraunaborunum og öðrum jarðhitaverkefnum til hagsbóta fyrir þróunarríki. 2.1.3 Aukin geta stofnana og sérfræðinga í þróunarlöndum til að stunda jarðhitarannsóknir og -þróun. |
– Jarðhitarannsóknir í Austur-Afríku. – Starfsemi Jarðhitaskóla HSÞ á Íslandi. – Stuðningur við ESMAP innan Alþjóðabankans. – Stuðningur við SE4ALL. – Stuðningur við IRENA. |
Kjarnaframlög til fjölþjóðastofnana (Alþjóðabankinn, NDF, FAO, IFAD). Verkefni á vegum borgarasamtaka. |
| 2.2 Bætt fæðuöryggi með auknu framboði ferskvatns- og sjávarafurða | 2.2.1 Aukið framlag fiskimálageirans til bætts fæðuöryggis og næringar íbúa í Mósambík. 2.2.2 Aukin uppbygging og innleiðing fiskveiðistjórnarkerfa í samstarfi við fjölþjóðastofnanir. 2.2.3 Bætt afkoma og velferð fátæks fólks í fiskimannasamfélögum, og aukin atvinnutækifæri kvenna í samstarfi við fjölþjóðastofnanir. 2.2.4 Aukin geta stofnana og sérfræðinga í þróunarlöndum til að stuðla að sjálfbærri nýtingu á (lifandi) auðlindum ferskvatns og sjávar. |
– Stuðningur við áætlanir fiskimálaráðuneytis Mósambíkur. – Stuðningur við fiskisamstarf innan Alþjóðabankans. – Starfsemi Sjávarútvegsskóla HSÞ á Íslandi. |
|
| 2.3 Bætt afkoma og fjölgun atvinnutækifæra fyrir konur og karla í fiskimannabyggðum | 2.3.1 Bætt lífsskilyrði fólks sem stundar fiskveiðar eða fiskeldi í smáum stíl í Mósambík. 2.3.2 Bætt afkoma í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði. 2.3.3 Aukin atvinnutækifæri kvenna innan virðiskeðjunnar í fiski í Buikwe-héraði. |
– Stuðningur við áætlanir fiskimálaráðuneytis Mósambíkur. – Byggðaþróun í fiskimannasamfélögum í Buikwe-héraði: fiskimálaverkefni (í undirbúningi). |
| Undirmarkmið | Væntanlegur árangur | Aðgerðir/verkefni | |
| 2.4 Aukin geta þróunarríkja til að takast á við og sporna við landeyðingu | 2.4.1 Aukin geta stofnana og sérfræðinga í þróunarlöndum á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar, með jafnréttismál að leiðarljósi. | – Starfsemi Landgræðsluskóla HSÞ á Íslandi. – Framlög til verkefna á vegum IFAD. |
|
| 2.5 Aukin geta þróunarríkja til að takast á við og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga | 2.5.1 Verkefni sem íslensk stjórnvöld veita framlög til taka tillit til umhverfissjónarmiða. 2.5.2 Aukin áhersla á viðnámsþrótt gegn áhrifum loftslagsbreytinga í þróunarstarfi. 2.5.3 Framlög til loftslagsverkefna skili sér til fátækustu ríkjanna. 2.5.4 Tekið verði aukið tillit til kynjasjónarmiða í verkefnum á sviði loftslagsmála. |
– Framfylgja umhverfisstefnu og leiðarljósi í umhverfismálum. – Framlög í Green Climate Fund. – Framlög í sjóð Loftslagssamnings SÞ (UNFCCC) fyrir fátækustu þróunarlöndin. |
Meginmarkmið 3: Að auka viðnámsþrótt samfélaga og flýta endurreisn
með mannúðaraðstoð og starfi í þágu friðar.
| Undirmarkmið | Væntanlegur árangur | Aðgerðir/verkefni | |
| 3.1 Árangursríkari mannúðaraðstoð sem mætir þörfum nauðstaddra | 3.1.1 Aukin samhæfing og skilvirkni mannúðaraðstoðar. 3.1.2 Skjótari viðbrögð alþjóðasamfélagsins þegar neyð brýst út. 3.1.3 Mannréttindi og mannúðarlög eru virt. |
– Framlög og liðsafli til SÞ stofnana, s.s. CERF, OCHA, WFP og UNICEF. – Framlög til ICRC. – Framlög til Alþjóðabjörgunarsveitarinnar/ Landsbjargar. – Þjálfun fólks til starfa á vettvangi. |
Föst framlög til fjölþjóðastofnana (OCHA, CERF, ICRC, UNRWA, Alþjóðabankinn, UN Women, UNICEF). Verkefni á vegum borgarasamtaka. |
| 3.2 Sterkari innviðir, aukið lýðræði og kynjajafnrétti í stríðshrjáðum og/eða óstöðugum ríkjum | 3.2.1 Aukið öryggi og endurreisn samfélaga í stríðshrjáðum og/eða óstöðugum ríkjum, s.s. Afganistan og Palestínu. 3.2.2 Aukin forysta og þátttaka kvenna á sviði varnar-, öryggis- og mannúðarmála. 3.2.3 Aukið lýðræði í stríðshrjáðum og/eða óstöðugum ríkjum. |
– Framlög og liðsafli til borgaralegra starfa í stríðshrjáðum og/eða óstöðugum ríkjum hjá Atlantshafsbandalaginu, ÖSE og stofnunum SÞ (s.s. UNRWA og UN Women). – Framkvæmd áætlunar Íslands um Ályktun öryggisráðs SÞ nr. 1325 um konur, frið og öryggi 2013–2016. – Kynjajafnréttissérfræðingar til borgaralegra starfa í hjá Atlantshafsbandalaginu (RS), ÖSE og stofnunum SÞ. – Þátttaka í kosningaeftirliti á vegum ÖSE. |
|
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Samkvæmt 3. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, sem tóku gildi 1. október 2008, skal utanríkisráðherra annað hvert ár leggja fram tillögu til þingsályktunar um áætlun stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands til fjögurra ára í senn. Í áætluninni skal greint frá framlögum til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og hvernig þau skiptast á grundvelli stefnumiða Íslands í þróunarsamvinnu til lengri og skemmri tíma litið. Þá skal áætlunin fela í sér heildstætt yfirlit yfir það hvernig ráðherra hyggst ná settum markmiðum hennar. Í áætluninni skal m.a. tiltaka fyrirhugað hlutfall framlaga til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu af vergum þjóðartekjum.
Í samræmi við ákvæði 3. gr. laganna hefur tillagan verið lögð fyrir þróunarsamvinnunefnd og fylgir umsögn hennar sem fylgiskjal II.
Helstu breytingar frá þingsályktun um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2013–2016.
Skjalið Áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016–2019 er prentað sem fylgiskjal I með þingsályktunartillögu þessari. Skjalið inniheldur ítarlega umfjöllun um grundvöll, forsendur og markmið þeirra áhersluatriða sem þingsályktunartillagan inniheldur.
Áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016–2019 er áþekk þingsályktun um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2013–2016 hvað varðar framtíðarsýn, áherslur og framkvæmd. Einu breytingarnar hvað varðar áherslur er að nú er landgræðsla komin inn sem sérstakt áherslusvið undir sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda auk loftslags- og umhverfismála sem áður voru einungis þverlægt málefni. Þá eru jafnréttismálin einnig komin inn sem sérstakt áherslusvið undir uppbyggingu félagslegra innviða í stað þess að falla einungis undir þverlægt málefni.
Áætlunin er þó frábrugðin hvað varðar uppbyggingu og framsetningu. Væntanlegur árangur af starfi Íslands á þessu sviði fær aukið vægi, í stað aðgerða. Í því skyni er sett fram yfirlit um aðgerðir og verkefni (V. kafli) þar sem gerð er grein fyrir undirmarkmiðum, áætluðum árangri og verkefnum og er það er í takt við áherslur íslenskra stjórnvalda um árangursmiðaða stjórnun. Þess ber að geta að yfirlitið er ekki tæmandi auk þess sem verkefni sem hefjast á árinu 2016 eru enn sum hver í undirbúningi og því ekki hægt að telja þau upp og greina frá ætluðum árangri. Á það t.d. við um verkefni með UN Women og UNICEF auk þess sem núverandi verkefnum í Mangochi-héraði í Malaví lýkur um mitt ár 2016 og undirbúningur nýs áfanga í samstarfinu yfirstandandi.
Þá er kaflinn um framlög með öðru sniði en áður. Nú er greint frá skiptingu framlaga eftir framkvæmdaleiðum og stefnumiðum, en skipting eftir fjárlagaliðum dettur út.
Í samræmi við þingsályktun um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2013– 2016 hefur verið gerð greining á núverandi og mögulegum samstarfslöndum með það fyrir augum að kanna hvaða þróunarlönd falli best að því markmiði að ná samsvörun milli þarfa viðtökuríkis og styrkleika Íslands. Nokkur fámenn, fátæk og óstöðug ríki virðast koma sterklega til greina sem möguleg samstarfslönd Íslands og hugsanlegt er að gerðar verði tillögur um breytingar á samstarfslöndum án þess að leiði til fjölgunar. Slík tillaga verður kynnt á gildistíma áætlunarinnar. Fylgiskjal I.
Áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016–2019.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal II.
Umsögn Þróunarsamvinnunefndar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.