Ferill 798. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1432 — 798. mál.
Frumvarp til laga
um kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna
og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
(Eftir 2. umræðu, 13. júní.)
1. gr.
Bann við vinnustöðvunum.
Verkfallsaðgerðir þeirra aðildarfélaga Bandalags háskólamanna, og félagsmanna þeirra, sem starfað hafa sameiginlega að viðræðum um launalið og að fleiri sameiginlegum kröfum gagnvart fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, svo og frekari vinnustöðvanir eða aðrar aðgerðir þessara aðila sem er ætlað að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða, eru óheimilar frá gildistöku laganna og á gildistíma ákvarðana gerðardóms skv. 2. gr., ef til skipunar hans kemur. Þau aðildarfélög sem 1. málsl. tekur til eru Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra hljómlistarmanna (Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands), Leikarafélag Íslands, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag lífeindafræðinga, Félag sjúkraþjálfara, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður , Iðjuþjálfafélag Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði, Stéttarfélag lögfræðinga og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Ákvæði 1. mgr. tekur einnig til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og félagsmanna þess.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. er aðilum heimilt að semja um breytingar frá því fyrirkomulagi sem lögin kveða á um en eigi má knýja þær fram með vinnustöðvun.
2. gr.
Skipun gerðardóms.
Hæstiréttur kveður á um hver hinna þriggja gerðardómsmanna skuli vera formaður dómsins og kallar sá dóminn saman.
Gerðardómurinn setur sér starfsreglur, aflar nauðsynlegra gagna og getur krafist skýrslna, munnlegra og skriflegra, af þeim sem gerðardómurinn telur nauðsynlegt. Aðilar skulu eiga rétt á að gera gerðardóminum grein fyrir sjónarmiðum sínum. Skal gerðardómurinn ætla þeim hæfilegan tíma í því skyni.
Gerðardóminum skal séð fyrir viðunandi starfsaðstöðu. Gerðardómurinn getur kvatt sérfróða menn til starfa í þágu dómsins og til ráðuneytis um úrlausn mála.
Kostnaður af starfi gerðardómsins greiðist úr ríkissjóði.
3. gr.
Ákvörðun gerðardóms.
Komi aðilar vinnudeilunnar sér saman um einhver efnisatriði í deilunni, án þess að vilja gera um það dómsátt, skal gerðardómurinn taka mið af því við ákvörðun sína en hefur þó frjálsar hendur um tilhögun mála.
Heimilt er gerðardómi að beita sér fyrir samkomulagi eða dómsátt á milli aðila sem hafi sömu réttaráhrif og ákvarðanir gerðardómsins, hvort sem er um einstök ákvæði eða heildarsamning þeirra í milli, og tekur þá gerðardómurinn ekki ákvörðun um þau atriði sem samkomulagið eða dómsáttin tekur til.
4. gr.
Gildistaka.