Ferill 616. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1642  —  616. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni
um skattstofna, gjöld og markaða tekjustofna.


    Til að greinargóð svör séu gefin við þeim spurningum sem eru settar fram í fyrirspurninni hafa verið útbúnar þrjár yfirlitstöflur. Annars vegar er um að ræða tvær töflur sem ætlað er að veita yfirlit yfir breytingar sem hafa orðið á skatthlutföllum og krónutölufjárhæðum þar tilgreindra skatta og gjalda frá ársbyrjun 2008. Hins vegar er ein tafla sem inniheldur yfirlit yfir markaðar skatttekjur og aðrar rekstrartekjur stofnana og ráðstöfun þeirra í formi veittra fjárheimilda á árunum 2008–2015. Ómögulegt reyndist að setja töflurnar fram á læsilegan hátt í hefðbundnu þingskjali. Af þeim sökum er um svar við 1. og 3. lið fyrirspurnarinnar vísað til taflna sem birtar eru á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

     1.      Hve mikið og hvenær hafa skatthlutföll einstakra skattstofna og krónutölufjárhæðir gjalda breyst frá ársbyrjun 2008?
    Um svar vísast til taflna I og II sem birtar eru á eftirfarandi vefslóðum:
     www.fjarmalaraduneyti.is/media/frettatengt2015/Tafla-I.xlsx
     www.fjarmalaraduneyti.is/media/frettatengt2015/Tafla-II.xlsx

     2.      Hvaða skattstofnar og gjöld hafa verið tekin upp og hvaða skattstofnar og gjöld hafa verið aflögð á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Eins og lesa má úr töflum I og II sem vísað var til í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar voru helstu breytingar að því er varðar lögfestingu og brottfall einstakra skatta og gjalda frá ársbyrjun 2008 þessar:
     –      Sérstakur tekjuskattur var lögfestur ein­göngu fyrir tekjuárið 2009.
     –      Afdráttarskattur af vaxtagreiðslum til erlendra aðila var lögfestur vegna vaxta sem gjaldféllu og urðu greiðslukræfir frá og með 1. september 2009.
     –      Skattlagning á kolvetnisvinnslu var lögfest 2009.
     –      Þrepaskiptur tekjuskattur var lögfestur tekjuárið 2010.
     –      Auðlegðarskattur var lagður á við álagningu opinberra gjalda 2010 til og með álagningu opinberra gjalda 2014.
     –      Viðbótarauðlegðarskattur var lagður á við álagningu opinberra gjalda 2010 til og með álagningu opinberra gjalda 2013.
     –      Kolefnisgjald á fljótandi eða loftkennt jarðefnaeldsneyti var lögfest 2010.
     –      Orkuskattur á sölu á heitu vatni var lögfestur 2010.
     –      Orkuskattur á rafmagn var lagður á 2010 til og með 2015 er hann var felldur brott.
     –      Greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara var lögfest 2010.
     –      Iðnaðarmálagjald var fellt brott og lagt á í síðasta skipti við álagningu opinberra gjalda 2011.
     –      Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki var lögfestur og lagður á í fyrsta skipti við álagningu opinberra gjalda 2011.
     –      Fjársýsluskattur var lögfestur tekjuárið 2012.
     –      Sérstakur fjársýsluskattur var lögfestur tekjuárið 2012.
     –      Gistináttaskattur var lögfestur tekjuárið 2012.
     –      Stimpilgjald af lánsskjölum o.fl. var fellt brott í árslok 2013.
     –      Almennt vörugjald var fellt brott 1. janúar 2015.

     3.      Hverjir hafa verið markaðir tekjustofnar á tímabilinu? Hve stór hluti einstakra markaðra tekjustofna hefur runnið til þeirra verkefna sem þeir eru markaðir?
     4.      Hverjir eru markaðir tekjustofnar fyrir 2015, hvaða tekjum er áætlað að hver fyrir sig skili og hvernig er áætlað að verja tekjum af þeim á árinu?
    Með hugtakinu markaðar tekjur er átt við tekjur af sköttum, lögboðinni gjaldtöku fyrir þjónustu og öðrum ríkistekjum sem sérstaklega er ætlað að fjármagna útgjöld tiltekinna málaflokka, stofnana eða verkefna ríkisins. Í fjárlögum og ríkisreikningi er mörkuðum tekjum skipt í tvo meginflokka, þ.e. markaðar skatttekjur og aðrar rekstrartekjur stofnana. Skatttekjur eru skilgreindar sem tekjur af lögboðinni gjaldtöku sem ríkið krefur einstaklinga eða lögaðila um án þess að á móti komi samsvarandi bein framlög eða þjónusta. Dæmi um markaðar skatttekjur eru tryggingagjald, olíugjald, lyfjaeftirlitsgjald og eftirlitsgjald Fjármálaeftirlitsins. Aðrar rekstrartekjur eru skilgreindar sem tekjur af lögboðinni gjaldtöku af einstaklingum eða lögaðilum fyrir tiltekna þjónustu ríkisins sem það eitt veitir hlutaðeigandi. Til að slíkar greiðslur teljist til rekstrartekna má gjaldtakan ekki vera umfram kostnað við veitta þjónustu og jafnframt er áskilið að greiðandinn njóti þjónustunnar, annars teljast greiðslurnar til skatta. Til annarra rekstrartekna teljast einnig tekjur af eignum og fjárframlög. Sem dæmi um aðrar rekstrartekjur stofnana má nefna innritunargjöld í opinbera háskóla og fram­haldsskóla, markaðsleyfi Lyfjastofnunar, gjald Matvælastofnunar fyrir heilbrigðiseftirlit með sláturafurðum, skoðunargjöld Vinnueftirlits ríkisins og framlag Happdrættis Háskóla Íslands til Háskóla Íslands.
    Á síðustu árum hefur oft komið til tals að æskilegt væri að draga úr mörkun ríkistekna til að auka gagnsæi, einfalda og styrkja fjármálastjórn einstakra ríkisaðila og ríkissjóðs í heild, losna við ýmsa flókna umsýslu um þessar tekjur við gerð fjárlaga og ríkisreiknings og styrkja fjárstjórnarvald Alþingis. Auk þess þykir það sanngirnismál að allir sitji við sama borð þegar kemur að ákvörðun fjárheimilda og aðhaldsráðstafana. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur tekið undir þessi sjónarmið. Fjárlaganefnd Alþingis hefur einnig margoft tekið undir gagnrýni Ríkisendurskoðunar á núverandi fyrirkomulag markaðra tekna og á 143. löggjafarþingi lagði meiri hluti nefndarinnar fram lagafrumvarp sem miðaði að víðtæku afnámi á mörkun ríkistekna en frumvarpið hlaut ekki afgreiðslu. Í frumvarpi til laga um opinber fjármál sem lagt var fyrir Alþingi síðasta haust er við það miðað að hætt verði að færa skatttekjur upp í reikningum einstakra ríkisaðila og að þar verði ein­göngu færðar rekstrartekjur sem tengjast með beinum hætti rekstri viðkomandi.
    Í ríkisreikningi eru tekjur af mörkuðum tekjustofnum færðar að fullu til tekna í ársreikningum þeirra aðila sem tekjurnar eru markaðar. Ekki er þó hægt að lesa beint út úr reikningnum hve stór hluti reikningsfærðra tekna hefur runnið til þeirra verkefna sem þær eru markaðar. Þær upplýsingar má þó nálgast með því að bera markaðar skatttekjur og aðrar rekstrartekjur stofnana saman við heimildir sem veittar hafa verið í fjárlögum, fjáraukalögum og lokafjárlögum til ráðstöfunar á þessum tekjum.
    Í töflu III á slóðinni www.fjarmalaraduneyti.is/media/frettatengt2015/Tafla-III.xlsx er að finna yfirlit yfir markaðar skatttekjur og aðrar rekstrartekjur stofnana og ráðstöfun þeirra í formi veittra fjárheimilda á árunum 2008–2015. Tekjur eru á rekstrargrunni samkvæmt ríkisreikningi áranna 2008–2013 en á greiðslugrunni samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum 2014 og fjárlögum 2015 þar sem endanlegt uppgjör í lokafjárlögum á fjárheimildum verkefna sem fjármögnuð eru með mörkuðum tekjum liggur ekki fyrir. Í talnadálkinum lengst til hægri „Tekjur – fjárheimildir“ sést hvort tekjur af viðkomandi tekjustofni hafa verið umfram veittar heimildir til ráðstöfunar á tekjunum á tímabilinu (jákvæð mismunatala) eða hvort veittar fjárheimildir hafa verið umfram tekjurnar (neikvæð mismunatala). Í heildina tekið eru veittar fjárheimildir sem fjármagnaðar eru með mörkuðum ríkistekjum 1.108,1 millj. kr. umfram tekjur á umræddu tímabili. Mest munar um 21,2 milljarða kr. fjárheimildir umfram markaðar tekjur til vegamála á tímabilinu. Tekjur umfram veittar fjárheimildir eru hins vegar mestar 8,9 milljarðar kr. hjá Ofanflóðasjóði, 3,8 milljarðar kr. hjá Ábyrgðasjóði launa og 3,6 milljarðar kr. hjá Fæðingarorlofssjóði. Því má telja að í þeim tilvikum þar sem útgjöld hafa fylgt allt annari þróun en felst í mörkuðu tekjunum sé árleg mörkun þessara tekna fyrirkomulag sem hafi í reynd haft litla þýðingu fyrir ákvarðanatöku um framlög til þessara málaflokka. Skýringar á helstu frávikum milli tekna og fjárheimildaeru tilgreindar fyrir neðan töfluna.