Fundargerð 145. þingi, 157. fundi, boðaður 2016-09-26 19:40, stóð 19:41:04 til 21:53:03 gert 27 7:40
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

157. FUNDUR

mánudaginn 26. sept.,

kl. 7.40 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:41]

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fóru fram kl. 19.40 mánudaginn 26. september 2016 og voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin - grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð, Píratar.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Samfylkinguna töluðu Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal innanríkisráðherra í annarri umferð, en í þriðju umferð Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð töluðu Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru í fyrstu umferð Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í annarri, og Karl Garðarsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þriðju umferð Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Pírata voru Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Horfa

[21:52]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 21:53.

---------------