Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 87 — 87. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (rusl á almannafæri, sektir).
Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Elín Hirst, Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Jón Gunnarsson,
Valgerður Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Árnason.
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 17. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Öllum sem fara um hálendið og þjóðvegi landsins er óheimilt að fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Brot á ákvæði þessu varðar refsingu, sbr. 90. gr.
2. gr.
Á eftir 2. mgr. 90. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Það varðar mann sektum að lágmarki 100.000 kr. ef hann brýtur ákvæði 2. mgr. 17. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Rusl sem er fleygt á víðavangi er augljóst lýti á umhverfinu. Með því að láta slíkt framferði óáreitt sköðum við þau verðmæti sem felast í íslenskri náttúru. Erlendis er þekkt að greiða þarf háar sektir fyrir að henda rusli á víðavangi.
Með frumvarpinu er lagt til að lögfestar verði aðgerðir til að halda náttúrunni hreinni og stuðla að bættu hugarfari.